Fréttablaðið - 14.05.2009, Qupperneq 52
36 14. maí 2009 FIMMTUDAGUR
folk@frettabladid.is
> TONY TIL VARNAR
Carlos Bernard, sem leikur Tony Al-
meida í 24, hefur komið meðleik-
ara sínum, Kiefer Sutherland,
til varnar. Kiefer er sakaður
um líkamsárás en Bernard
trúir ekki sökunum upp á
sinn mann. „Kiefer er einn af
mínum bestu vinum og hann
er frábær. Ég hef verið í sam-
kvæmum og á börum með
honum um allan heim og
hann er alltaf kurteis við fólk,“
segir Bernard.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Fimmtudagur 14. maí 2009
➜ Myndlist
Maria Edit Antal hefur
opnað málverkasýninguna
„Hinar vaxandi hjartans
rætur“ á Laugavegi 51.
Opið mán. - sun. kl. 12-18.
➜ Tónleikar
20.00 Þráinn Hjálmarsson og Ásgeir
Aðalsteinsson frumflytja eigin verk á
Kjarvalsstöðum við Flókagötu á úskrift-
artónleikum tónlistardeildar LHÍ.
20.00 Á Kimakvöldi í Sódóma Reykja-
vík við Tryggvagötu koma fram: Reykja-
vík!, Ben Frost, DLX ATX og Skelkur í
bringu.
20.00 Þrjár Raddir og Beatur verða á
B5 við Bankastræti 5. Beatur þeytir
skífum milli atriða. Aðgangur ókeypis.
21.00 Mingus Ah Um spila á tónleik-
um jazzklúbbsins Múlans, í kjallara Café
Cultura við Hverfisgötu 18.
22.00 Vísna- og Blústríóið Gæðablóð
leikur fyrir gesti Næsta bars við Ingólfs-
stræti. Aðgangur ókeypis.
„Ég var alveg pollrólegur yfir
þessu, þetta var auðvitað hörku-
spennandi en ég var alveg handviss
um að við værum í síðasta umslag-
inu,“ segir Ólafur Ólafsson, kær-
asti Jóhönnu Guðrúnar Jónsdótt-
ur. Hann er kominn til Moskvu til
að styðja við bakið á unnustunni
í Eurovision-orrustunni ásamt
föður sínum, athafnamanninum
Ólafi Björnssyni. Ólafur bætir því
við að spennan hafi tekið mest á
móður Jóhönnu sem hafi setið
við hlið hans en sjálfur hafi
hann haldið ró sinni. „Ég
var bara alveg hæfilega
spenntur.“ Aðspurður
hvernig föður hans hafi
litist á keppnina segir
Ólafur að hann hafi, líkt
og aðrir Íslendingar,
verið nokkuð spenntur.
Honum hafi hins vegar
verið meinilla við belg-
íska lagið CopyCat.
Í gær var svo komið að frídegi
hjá Eurovision-hópnum og þá var
kærkomið tækifæri fyrir parið
unga að eyða smá
t í m a s a m a n .
Enda hefur Eur-
ovision-þátttak-
an átt allan hug
Jóhönnu
undanfarnar vikur og mánuði.
Ólafur kvaðst þó ekki vera búinn
að kaupa blóm handa spúsu sinni
því hann ætlaði að geyma bestu
rósirnar þangað til á laugardag-
inn. „Þegar hún vinnur þessa
keppni,“ segir Ólafur, alveg sann-
færður um íslenskan sigur í
Moskvu. Ekki að ósekju. Eins og
heyra mátti í útsendingunni í gær
var alveg gríðarlegur stuðningur
við íslenska lagið og blaðamenn
í Moskvu eru ákaflega bjartsýn-
ir fyrir Íslands hönd. „Þetta var
bara hálfur sigur, nú förum við
bara alla leið.“
Þau Ólafur og Jóhanna ætluðu
þó að leyfa sér þann munað að fara
út að borða saman og fagna þess-
um áfanga en svo taka við þrot-
lausar æfingar og undirbúning-
ur fyrir úrslitakvöldið sjálft en
Jóhanna verður sjöunda á sviðið
á laugardaginn.
- fgg
Kærasti Jóhönnu hélt ró sinni í Moskvu
ÁFRAM SUNGIÐ Jóhanna syngur sig inn í
hug og hjörtu Evrópubúa með laginu Is
it True? FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Leikkonan Megan Fox hefur
formlega lýst því yfir sem
allir vissu og allir hugsa;
að Hollywood sé yfirborðs-
kenndur vinnustaður. Fox
segir að fjölmargir fram-
leiðendur hafi hafnað henni
í alvarlegri hlutverk af því
hún þyki of sæt. Megan Fox
var næstum óþekkt með
öllu þegar hún sló í gegn
í kvikmyndinni Transfor-
mers. Hún hefur síðan þá
verið í kastljósi fjölmiðla
og sú athygli á ekki eftir
að minnka þegar fram-
haldsmyndin verður frum-
sýnd.
Fox viðurkennir hins
vegar að hana langi til að
takast á við erfiðari og
meira krefjandi hlutverk.
Framleiðendur hafi hana
hins vegar ekki í huga þegar
valið sé í slíkar kvikmyndir.
Hún sakar því kvikmynda-
framleiðendur um að búa
til falsheim þar sem allt er
falt fyrir fegurð en þegar á
hólminn er hún síðan notuð
sem afsökun til að hafna.
„Ég er ótrúlega fúl yfir
því að menn skuli sífellt
hafna mér á grundvelli þess
að ég sé of falleg, þetta er
svo mikil hræsni. Ef ég væri
ekki eins og ég er hefði ég
ekkert að gera í Hollywood.
Þessi borg er það yfirborðs-
kenndasta sem ég veit um.“
Yfirborðskennd Hollywood
ÓSÁTT Megan Fox er ósátt við
Hollywood, segir hana vera
yfirborðskennda.
STUND MILLI STRÍÐA Jóhanna Guðrún
og kærastinn, Ólafur Ólafsson, ætluðu
að fara út að borða í kvöld í tilefni af
góðum árangri, blómvöndurinn kemur
þegar sigur er í höfn.
VW Passat – 2001 1.8
Með 12% AO
afslætti: 63.680
VW Passat – 2001 1.8
Atlantsolía - Lónsbraut 2 220 Hafnarfirði - Sími 591 3100 - atlantsolia@atlantsolia.is
VARAHLUTIR
26% sparnaður!
Sæktu um ókeypis dælulykil,
www.atlantsolia.is
Mismunur 26%
eða 22.054 kr.
Sími: 567 6020
Atlantsolía hefur samið við AB-varahluti Bíldshöfða 18.
Þannig njóta dælulyklahafar Atlantsolíu 12% afsláttar
af varahlutum.
Með 15% N1
afslætti: 85.734
Verðkönnun gerð af Atlantsolíu.
P
IP
A
R
• S
ÍA
• 9
0
6
4
5
Kate Winslet lætur aldrei frá
sér hring sem hún fékk að gjöf
frá mótleikara sínum í Titanic
og Revolutionary Road, Leonar-
do DiCaprio. Leikkonan neitar
að taka hann af sér og fer með
hann hvert sem hún fer. DiCaprio
lét víst skrifa falleg orð til Kate
innan á hringinn en leikkonan
hefur víst ekki viljað upplýsa
hver þau eru. „Ég mun aldrei
upplýsa það,“ sagði Kate við
breska blaðamenn nýverið.
Elskar hringinn