Skinfaxi - 15.03.1930, Qupperneq 2
74
SIÍINFAXI
í Barnaskólahúsinu á Eyrarbakka að kvöldi 5. mai
1920. Voru stofnendur 43. 20 þeirra voru 14 ára ung-
lingar, er lokið höfðu fullnaðarprófi í barnaskólan-
um fáum dögum áður. Nokkrir hinna voru nemend-
ur úr ungmennaskóla, er starfað liafði í þorpinu vet-
urinn fyrir. Heita mátti, að allir væru stofnendur
kornungt fólk, nema tveir, er komnir voru yfir þrí-
tugt, þau Jakobína Jakohsdóttir kennari og Gísli
Pétursson héraðslæknir.
Aðalforgöngumaður félagsstofnunarinnar var Að-
alsteinn Sigmundsson, er flutzt hafði til Eyrarhakka
haustið fyrir og tekið við forstöðu barnaskóla þorps-
ins. Hann samdi uppkast að lögum félagsins og réði
því, að það var sniðið við hæfi ungra félaga, meira
en titt er um íslenzk U. M. F. Helztu aðstoðarmenn
Aðalsteins við félagsstofnunina voru þeir Iíonráð
Gíslason og Ragnar Jónsson, nú verzlunarmenn í
Reykjavík, og Vilhjálmur S. Vilhjálmsson, nú blaða-
maður í Reykjavík.
Deildaskifting. — U. M. F. E. var skift í tvær deild-
ir, eldri og yngri, með lagabreytingu á aðalfundi 1921.
Var fyrsti fundur yngri deildar lialdinn 2. febr. það
ár. Skyldu ófermdir félagar vera i yngri deild, en
flytjast í eldri deild án inntöku, er fermdir væru.
Síðan liafa deildirnar starfað að nokkru leyti sem
tvö félög, með sameiginlegum lögum, yfirstjórn, sjóði
o. fl. Deildirnar halda flesta fundi livor út af fyrir
sig, en einstöku sameiginlega. Stjórn aðalfélagsins er
jafnframt stjórn eldri deildar, og sú deild hefir með
höndum framkvæmdir félagsins og fjárreiður. Yngri
deild hefir sérstjórn, skipaða hörnum innan 14 ára
aldurs. Þrír fulltíða félagar vinna með deildinni og
leiðbeina henni, formaður félagsins og tveir aðrir, er
liann tilnefnir á aðalfundi.
Forysta. — Starfsemi, andi og árangur æskulýðs-
félaga veltur á engu jafnmikið og þeim mönnum, er