Skinfaxi - 15.03.1930, Síða 7
SKINFAXl
79
an 16 ára aldurs hafa flutt 8 fyrirlestra, og liafa þeir
yfirleitt verið mjög prýðilegir. Þeirra mest þrekvirki
var fyrirlestur, er Daníel Ágústínusson flutti i árs-
byrjun 1928, þá 14 ára gamall, um árið 1927. Talaði
liann í 1% klst. og gaf furðulega glöggt og tæmandi
yfirlit um atburði ársins. Veturinn 1922—’23 var flutt-
ur flokkur fyrirleslra um mannslíkamann. Annars
hafa helztu fvrirlestraefni verið þessi: íslenzkir
merkismenn, 9 fyrirl.; einstök héruð og staðir, 5 fyr-
irl.; ungmennafélagsskapurinn, 5 fyrirl.; ástir, 3 fyr-
irl.; prúðmennska; kurteisi; útinautnir; Eyrarbakki
fyrir síðustu aldamót; útvarp; skátahreyfingin; lífið
i dönskum lýðliáskóla o. s. frv.
Blaðaútgáfa. — Félagið gefur út tvö blöð. „Geisli“
er blað félagsheildarinnar og eldri deildar, en
„Stjarna" hlað yngri deildar. Þau flytja ritgerðir,
kvæði, sögur, skrítlur o. fl., sem félagsmenn hafa
frumsamið eða þýtt. í blöðunum liefir hirzt fjöldi
Ijósmynda úr lifi félagsins, skemmtiferðúm j)ess, iðn-
sýningum o. fl., og af öðru, er blöðin fjalla um. Eru
myndirnar límdar inn í lesmálið, þar sem við á.
Um skeið fluttu blöðin allmikið af teikningum, á
meðan Sigurjón Ólafsson, nú myndhöggvari, starfaði
í félaginu, þá innan við og um fermingu. Blöðin eru
rituð í vandaðar, bundnar pappírsbækur. Tveir rit-
stjórar stýra hvoru blaði. Skipa þeir þriggja manna
ritnefnd fyrir livert tölublað, en færa sjálfir efnið
í bælcurnar, til þess að tryggja snyrtilegan frágang. —
Eitt sinn gaf yngri deild út fjölritað jólablað af
„Stjörnu“. Flutti það m. a. frumsamda jólasögu eftir
12 ára dreng.
BindincLisstarf. — Um það skrifar Sigurður Ivrist-
jáns:
„Það hefir nokkuð oft borið við, er eg hefi verið
að tala um ungmennafélögin yfirleitt, við menn, er
lítið hafa þekkt til þeirra, að þeir hafa gert lítið úr