Skinfaxi - 15.03.1930, Page 14
86
SKINFAXI
leitaði æskulýður burtu til fjörugra atvinnulífs en var
lieima fyrir. Af þessu leiddi, að U. M. F. E. missti
mikinn fjölda ungmenna sinna, jafnóðum og þau
uxu til verulegra starfa í félaginu. Hefir það því
jafan átt tiltölulega fáu vönu starfsliði á að skipa,
en lilutfallslega miklu ótaminna krafta. Þetta hefir
valdið fél., einkum forystumönnum þess, ýmsum örð-
ugleikum, er eigi skal nánar um rætt hér. Við þetta
bætist, að af útstreyminu hefir leitt trúleysi almenn-
ings á þorpið og framtíðina. Hefir það vitanlega eigi
orðið félaginu til brýningar, en á iiinn bóginn gert
tilveru þess þýðingarmeiri.
Skylt er að geta þess og þakka, að U. M. F. E. hefir
jafnan átt vinsældum og viðurkenningu að fagna,
meðal eldri kynslóðar þorpsins.
Þýðing. — Ungmennafélög eru starfsfélög að vísu,
en gildi þeirra lilýtur þó jafnan mest að liggja í skerfi
þeim, sem þau leggja til menningar og þroska þjóð-
ar vorrar. Þess vegna verður eigi hjá því komizt nú,
þegar litið er yfir tiu ára starf U. M. F. E., að reyna
að gera sér ljóst, hverja uppeldislega og þjóðernis-
lega þýðingu félagið hefir Iiaft fyrir félagsmenn,
þorpið, sem í var unnið, og þjóðarheild vora. Verð-
ur sú þýðing að vísu hvorki þreifuð né séð, — hvorki
vegin né metin.
Forgöngumönnum U. M. F. E. var það ljóst, þeg-
ar í upphafi, að þá var félagið hezt tryggt sem starfs-
félag, ef það rækti vel skyldur sínar sem uppeldis-
félag. Að þá var framtíð þess örugg, ef það átti jafn-
an unga krafta og þeir kraftar fengu viðnám og við-
fangsefni að spreyta sig og temjast á. Þess vegna var
félagið sniðið á þá lund, að regluleg æska hefði þang-
að nokkuð að sækja. Það var og ljóst, að börn fram
að gelgjuskeiði eiga enga samleið með þroskuðum
unglingum, um hugðarefni, skilning né starfhæfni.
Það er hins vegar mikils vert, að draga hugi harna