Skinfaxi - 15.03.1930, Page 15
SKINFAXI
87
að hugsjónum U. M. F. og temja þeim félagsstörf.
Þess vegna hefir U. M. F. E. starfað í tveimur deild-
um allt frá fyrsta ári, yngri deild og eldri. Skift var
um fermingu milli deilda, en nýfermdir unglingar
liafa átt jafnan aðgang að báðum deildum.
Auðvitað varð ekki hjá því komizt, að fullorðnir
félagar úr e. d. væru i verki og ráðum með y. d.
Þessir hjálpendur y. d. áttu um tvær leiðir að velja.
Önnur var sú, sem almennt er að „gæzlumenn“ barna-
félaga noti: að liugsa sjálfir allt ráð deildarinnar,
vinna störf hennar, stjórna börnunum eins og óvit-
um eða skólakrökkum og „skemmta“ þeim á fund-
um og samkomum, en láta þau sjálf aðgerðalítil. Hin
leiðin, sú, sem hér var valin, er að láta börnin hugsa
og vinna sjálf öll störf félagsins, utan og innan funda;
en fullorðnir félagar væru aðeins ráðunautar, er þau
gætu leitað til, er þau vildu, en eigi húshændur né
stjórnendur. Þarf eigi orðum að eyða að því, að síð-
ari leiðin liefir stórum meira uppeldisgildi.
Framan af æfi yngri deildar þurftum við, leiðbein-
endur hennar, allmikið að hafa hönd í bagga með
um stjórn liennar og starfsemi, meðan allt var í
bernsku og föst starfsform að myndasl. En á síðari
árum má heita, að hörnin liafi sjálf gersamlega bor-
ið liita og þunga deildarinnar. Þau hafa sjálf samið
starfskrár sínar, án þess aðrir kæmu þar nærri, og
verið furðu nösk að velja öllum félögum liæfileg
verkefni. Þau stýra sjálf fundum sínum, kvöldvök-
um og skemmtunum og vinna á þeim öll verk. Og
er þau hafa farið skemmtiferðir, hafa þau samið
sjálf um bifreiðir, jafnað niður gjöldum og heiml
þau inn.
Eg nefni eina ársskemmtun sem dæmi þess, hve
y. d. er látin sjálfri sér nóg. Þar fór þetta fram:
Glímuflokkur y. d. sýndi glímu. Nokkur börn léku
þátl úr Nýjársnóttinni. Flokkur harna sýndi söng-