Skinfaxi - 15.03.1930, Blaðsíða 18
90
SKINFAXI
Minning.
Vigdís Ólafsdóttir var einn stofnandi U. M. F. E.
og aðalstarfsmaður þess til dauðadags. Þess vegna
verður saga félagsins ekki
skrifuð, nema hennar sé get-
ið um leið. Sökum frábærra
hæfileika og ágætrar skap-
gerðar, var hún jafnan í
fremstu röð, elskuð og virt af
öllum samferðamönnum sín-
um á lífsleiðinni, bæði á
heimili, í skóla- og félagslifi.
Hér verður aðeins minnst á
starf hennar í þágu U. M. F.
E. Hún tók þátt í fram-
kvæmdum félagsins með fjöri
og áhuga, svo sem henni var
lagið, enda var hún oftast í
nefndum, sem áttu að sjá um
stærstu viðfangsefnin, svo
scm iðnaðarnámsskeið, lieimilisiðnaðarsýningar,
iiiutaveltur, íþróttanámskeið, skemmtiferðir, skemmti-
samkomur o. fl. Stjórnendur félagsins máttu jafnan
ganga að því vísu, að því máli var vel borgið, sem
liún tók að sér. Og hún var fús til þess að fórna
kröftum sinum í þágu félagsins, eftir því sem tími
hennar leyfði, því að henni þótti vænt um það, og
vildi vinna að framförum þess í öllu. Hún tók jafn-
an góðan þátt í fundastarfseminni, bæði í umræðum
og útgáfu blaðsins, enda var hún fyrsta konan, sem
send var á liéraðsþingið að Þjórsártúni. Hún var
tvívegis kjörin til þess starfa. En liún gat aldrei fram-
kvæmt það í síðara skiftið, því að þá var lokað lífs-
ins bók. Hún andaðist 11. jan. 1926, aðeins 21 árs.
Við félagar hennar minnumst hennar jafnan sem
Vigdís Ólafsdóttir.