Skinfaxi - 15.03.1930, Page 24
96
SKINx'AXI
Vikivaki.
(Kvæði þetta gaf varaform. U. M. F. E. félaginu á vikivaka-
námsskeitii þess 1929. Lag: Máninn hátt á himni skín).
Frjálsan, léttan, fagran dans
frani á sléttan völl
sterklega við stígum;
stynja grundir, fjöll.
Bylur bára við sand,
blika Ránar tjöld.
Allan taka Eyrarbakka
æskunnar völd.
Stigu áður álfar dans,
undir kváðu ljóð.
Nú eru vikivakar
að vinna okkar þjóð.
Bylur bára við sand o. s. frv.
Glatl er oft í góðri sveit,
giymur loft af söng;
tökum allir undir
Islands kvæða föng.
Bylur bára við sand o. s. frv.
Fagurt æsku félagslíf,
frjálst og græskulaust,
bæfir svanna og sveini,
sem eru glöð og liraust.
Bylur bára við sand o. s. frv.
Stígum fram og strengjum lieit,
slokkinn ramma á,
að við skulum alla
okkar krafta ljá
vorri vaxandi ]).jóð,
verja okkar land.
Eyrai’bakka yrkja og græða
ógróinn sand. Þ. G.