Skinfaxi - 01.04.1964, Blaðsíða 13
12. Landsmót UMFI
að Laugarvatni næsta sumar
Nú er ákveðið að 12. landsmót UMFÍ
verði háð að Laugarvatni 3. og 4. júlí
1965. Héraðssambandið Skarphéðinn hef-
ur tekið að sér framkvæmd mótsins og
fjárhagsábyrgð. Kosin hefur verið 5 manna
Landsmótsnefnd. Hana skipa: Stefán Jason-
arson, Vorsabæ, formaður; Björn Sigurðsson,
Úthlíð, Hermann Guðmundsson, Blesa-
stöðum, Hermann Sigurjónsson, Raftholti,
og frá stjórn UMFÍ Ármann Pémrsson,
Reykjavík. Landsmótsnefndin vinnur að
víðtækum undirbúningi mótsins í samráði
við stjórn HSK og stjórn UMFÍ.
Eins og kunnugt er, þá er aðstaða á
Laugarvatni að mörgu leyti ákjósanleg til
að halda þar slíkt mót. Þar eru stór húsa-
kynni, greiðar samgönguleiðir að og frá
staðnum, mikil náttúrufegurð, og þar er
staðsettur íþróttakennaraskóli fslands með
tilheyrandi íþróttamannvirkjum.
í síðasta hefti Skinfaxa voru birtar regl-
ur um íþróttakeppnina, nema starfsíþrótt-
irnar.
Starfsíþróttir.
23. þing UMFÍ lagði til, að á næsta
landsmód UMFÍ fari fram keppni í eftir-
töldum starfsíþróttum:
1. Lagt á borð og blómaskreyting 2 fl.
2. Ostafat og eggjakaka 2 fl.
3. Jurtagreining 2 fl.
4. Dráttarvélaakstur 1 fl. unglingar.
5. Gróðursetning trjáplantna 1 fl.
6. Búfjárdómar 1 fl.
Stjórn og mótsnefnd heimilast þó að
láta búfjárdóma fara fram á öðrum stað
og tíma, ef hagkvæmara þykir.
Hinn gamalkunni Laugarvatnsskóli séöur frá áhorfendasvæði íþróttavallarins.
SKINFAXI
L3