Skinfaxi - 01.04.1964, Síða 15
hlotið 2 vinninga, er sex umferðir höfðu
verið tefldar, en í síðustu sjö umferðun-
um hlaut hann hvorki meira né minna en
5!/2 vinn. Og lagði bæði Friðrik og Inga
að velli í þeirri hrotu. Wade hefur komið
til íslands áður. Það var árið 1947, er hann
tefldi hér ásamt Kanadamanninum Yan-
ovsky. Þeir skákunnendur, sem lengra
muna, ættu því að kannast við hann.
Guðmundur Pálmason, sem varð sötti
með 7 vinninga, átti einnig örðugt upp-
dráttar í upphafi, en, þegar kom fram í
mitt mót, tók hann mjög að sækja í sig
veðrið. Þegar hann tefldi við Tal í 7. um-
ferð, hafði hann einungis hlotið 2Vi vinn.
Með hinu frækilega jafntefli við Tal sneri
hann blaðinu við og tefldi af miklu öryggi
allt til loka mótsins.
Ingi R. Jóhannsson varð í 7. og jafn-
framt síðasta verðlaunasæti með 6 vinn-
inga. Þetta var hans fyrsta mót eftir að
hann hlaut útnefningu sem alþjóðlegur
meistari. Frammistaða hans olli mönnum
vonbrigðum, en hafa verður það í huga, að
allir, jafnvel hinir beztu meistarar, geta
verið mistækir. Einnig ber að taka tillit til
þess, að hann var mjög óheppinn með liti.
Hann hafði svart á móti flestum sterkustu
mönnunum (Tal, Gligoric, Friðrik, Jo-
hannessen, Wade).
í 8. sæti komu þau Magnús Sólmundar-
son og Nona Gaprindashvili, heimsmeistari
kvenna, með 5 vinn. hvort.
Magnúsi hafði verið spáð neðsta sætinu
fyrir mótið, en hann lét þau spádómsorð
ekki á sér sannast og tefldi af öryggi í
flestum skákum sínum. Hlaut hann sízt
fleiri vinninga en efni stóðu til.
Nona byrjaði allvel, en slakaði á, þegar
Iíða tók á mótið. Líklegt er að þreyta hafi
Halldór Laxness leikur fyrsta leikinn f.h.
Tals í fjöltefli, sem Tal tefldi á vegum
M.Í.R. (Ljósm. A.K.).
valdið þar mestu um. Hún var nýkomin
frá sterku skákmóti í Hastings. Að Tal
undanskildum, mun hún hafa vakið mesta
athygli allra keppenda, enda ekki hvers-
dagslegur viðburður, að kona veiti karl-
mönnum svo harða keppni í skákinni.
í 10.—12. sæti komu svo þeir Arinbjörn
Guðmundsson, Freysteinn Þorbergsson og
Trausti Björnsson með 4 vinninga hver.
Fyrir mótið var Arinbjörn talinn líkleg-
ur, til að geta áunnið sér „hálfan alþjóða-
meistaratitil', en frammistaða hans varð
nokkru lakari en búizt hafði verið við.
Freysteinn, fyrrverandi íslandsmeistari,
var nokkuð misjafn, þegar á heildina er
litið, en hann getur þó státað af því, að
hann hafði næst bezta hlutfall út úr skák-
SKINFAXI
15