Skinfaxi - 01.04.1964, Side 19
Afrekaskrár U M F í
Eysteinn Hallgrímsson að Grímshúsum
í Aðaldal, Suður-Þingeyjarsýslu, hefur samið
og sent Skinfaxa þrjá töflur, sem hann
hefur samið um árangur einstaklinga í
frjálsum íþróttum innan vébanda ung-
mennafélaganna.
Ein taflan greinir frá árangri 10 beztu
einstaklinga innan UMFÍ miðað við ára-
mótin síðustu.
Önnur taflan bregður- upp samanburði
af bezta árangri hverrar greinar öll árin
1957—1963.
Þriðja taflan er yfir árangur 10 frækn-
ustu karla og kvenna í hverri grein frjálsra
íþrótta árið 1963.
Bak við samningu þessara taflna liggur
mikið verk. Ekki aðeins skriftir, heldur
heldur eftirgrenslan í 'skýrslum og blöðum,
og svo það sem lengst tefur: Biðin eftir
upplýsingum frá einstaklingum, sem oft
fást ekki nema með miklum eftirrekstri.
Við allt slíkt samanburðarstarf verður að
ríkja í huga höfundar virðingin fyrir því
að sannprófa allt, svo ávallt sé það tekið
sem sannara reynist
Ég hef ekki haft tíma til þess að fram-
kvæma ítarlegan samanburð á frumgögn-
um, sem hjá mér eru, og tölum í þessum
töflum. En ég hef t.d. rekizt á betri á-
rangur í tveim tilfellum frá síðasta ári hjá
ungmennafélögum innan Skarphéðins-sam-
bandsins en getið er um hjá Eysteini.
Mér finnst verk þetta svo athyglisvert,
að ég hef mælt með því við ritstjóra Skin-
faxa, að töflurnar verði birtar í ritinu.
Þeir, sem finna skekkjur, gjöra svo vel
að rita Eysteini athugasemdir sínar, svo að
hann geti gert verk sitt fullkomnara. Ekk-
ert er honum kærara.
Fyrir hönd íþróttafólks ungmennafélag-
anna leyfi ég mér að þakka Eysteini fram-
takið.
Þorsteinn Einarsson.
10 beztu afrek UMFÍ
1. janúar 1964
K A R L A R :
100 m. hlaup:
1. Guðmundur Vilhjálmss,. UÍA 10,8 52
2. Höskuldur Karlsson, UMFK 10,8 57
3. Þóroddur Jóhanness., UMSE 11,0 58
4. Guttormur Þormar, UÍA 11,1 51
5. Tómas Lárusson, UMSK 11,1 52
6. Guðmundur Valdimarss., HSS 11,1 53
7. Ólafur Unnsteinsson, HSK 11,1 61
8. Höskuldur Þráinsson, HSÞ 11,1 63
9. Matthías Guðmundsson, HSK 11,2 50
10. Böðvar Pálsson, UMFK 11,2 50
Þar að auki hafa 11 menn í
viðbót hlaupið á 11,2
200 m. hlaup:
1. Höskuldur Karlsson, UMFK 22,0 56
2. Matthías Guðmundsson, HSK 22,9 50
SKINFAXI
19