Skinfaxi - 01.04.1964, Blaðsíða 31
íþróttakennari kenndi hjá tveimur félög-
um sambandsins.
Héraðssamband Vestur-
ísíirðinga
Héraðsþing H.V.Í. var haldið á Þing-
eyri dagana 25. og 26. marz 1964. Þingið
sátu 12 fulltrúar frá 7 sambandsfélögum,
auk stjórnar sambandsins.
Staifið heima fyrir á liðnu starfsári hef-
ur aukizt, einkum á sviði íþrótta. Barna-
keppni var háð 9.—18. júní og náðist betri
árangur í henni en áður. 132 börn kepptu
og hlutu þau 2055 stig. Unglinganámskeið
stóð 20.—30. júní. Nemendur voru 81.
Innanhússmót fór fram 1. júní á Núpi.
Sveina- og telpnamót var haldið 23. júní,
en unglingamót féll niður. Héraðsmódð var
háð 9. og 30. júní.
Margar tillögur komu fram á héraðs-
þinginu og umræður urðu miklar um mál-
efni sambandsins. Stjórn sambandsins var
öll endurkosin, en hana skipa: Sigurður
Guðmundsson formaður. Emil R. Hjartar-
son varaformaður, Gunnlaugur Finnsson
ritari, Tómas Jónsson gjaldkeri.
Emil R. Hjartarson hefur tekið saman
afrekaskrá H.V.f. í frjálsum íþróttum karla.
Emil kallar skrá sína „drög að afrekaskrá",
þar sem vænta má einhverra breytinga á
henni, enda erfitt um heimildaöflun í
mörgum tilfellum. Samning slíkra afreka-
skráa héraðssambandanna er hið þarfasta
verk og væri æskilegt að fleiri sambönd
ynnu að slíkum málum. Hér er um eril-
samt og tímafrekt verk að ræða, í flestum
tilfellum, en víða orðin síðustu forvöð að
ná saman slíkum skýrslum, þar sem móta-
skýrslur hafa oft glatast.
„Skarphéðinn"
42. ársþing Héraðssambandsins Skarp-
héðins var haldið í Þjórsárveri í Villinga-
holtshreppi 25. og 26. janúar 1964. Þing-
ið sátu milli 50 og 60 fulltrúar frá 23
félögum, auk gesta. Stjórn HSK var end-
urkjörin, en hana skipa: Sigurður Greips-
son, Haukadal, formaður Hafsteinn Þor-
valdsson, Selfossi, ritari og Eggert Haukdal,
Bergþórshvoli, gjaldkeri.
í HSK eru nú 26 ungmennafélög, —
13 í Árnessýslu, 12 í Rangárvallasýslu og
1 í Vestur-Skaftafellssýslu. Sambandið efndi
til happdrættis, sem lauk á starfsárinu og
var árangur góður. Landsmótsnefnd tuf-
ur haldið marga fundi og þegar hafið öfl-
ugt undirbúningsstarf fyrir Landsmótið á
Laugarvatni.
Starfsíþróttir
Efnt var til veglegs starfsíþróttamóts að
Brautarholti á Skeiðum sunnud. 28. júní.
Keppendur voru um 40 frá 9 félögum á
sambandssvæðinu. Keppt var í sjö grein-
um starfsíþrótta karla og kvenna.
Umf. Hrunamanna hlaut flest stig, 25
Útbreiðslu- og leiðbeinendastarf.
Sunnudaginn 12. janúar var efnt til fé-
lagsmálakynningar á vegum Héraðssam-
bandsins Skarphéðins í skólunum á Laug-
arvatni. Sýndir voru þjóðdansar og glíma,
málefni sambandsins kynnt og undirbún-
ingur Landsmótsins að Laugarvatni, þá var
sýnd kvikmynd frá Landsmótinu á Laugum.
10. júní hófst að Laugarvatni námskeið
í frjálsum íþróttum á vegum Íþróttakenn-
skólans, þátttakendur voru 17 úr HSK.
Helgina 13. til 14. júlí efndi H.S.K. til
sameiginlegrar æfingar frj álsíþróttafólks á
SKINFAXI
31