Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1971, Síða 8

Skinfaxi - 01.04.1971, Síða 8
irtektir, en aðstæðurnar voru glæfralegar. Þannig gat þetta verið, þegar veðrið brást, en auðvitað var veðrið oft hagstætt og aðstæður til keppni og útiskemmtana góðar, en þetta veðurhappdrætti þekkja allir Islendingar ekki síður nú en þá. Nýi völlurinn í Þjórsártúni var tekinn í notk- un 1950, en glíma og hátíðardagskrá hafa jafnan farið fram á gamla vellinum, og þann völl verður að varðveita frá skemmdum og gleymsku. Hann er merki- legur menningarsögulegur minnisvarði. Jú, það eru margar minningar tengdar við héraðsmótin, en minnisstæðastar eru mér afmælishátíðir Skarphéðins 1950 og 1960. Á 40 ára-hátíðinni 1950 var stóra bændaglíman, þar sem 74 Árnesingar og Rangæingar leiddu saman hesta sína. Þetta var mikill viðburður. Rangæingar reyndust nokkru færri, þegar til leiks kom, svo að ég varð að úrskurða þeim menn að láni. Þá sögðu einhverjir tor- tryggnir Rangæingar, að auðvitað myndi ég lána þeim laka menn, en ég sagði: Spyrjið að leikslokum en ekki að vopna- viðskiptum. Það var mikil eftirvænting og áhorfendur geysimargir, brekkan var þakin fólki, og það fylgdist með af mikl- um áhuga og tjlfinningu. Árið 1960 var mikil rigning, en á þessari 50 ára af- mælishátíð sýndu ungar stúlkur og ungir piltar jrjóðdansa eins og ekkert hefði í skorist, og það var stórfengleg sýning. Mér kom til hugar, að með þessu fólki mætti vinna heilt konungsríki. — Breyttir þú íjrróttasambandinu Skarphéðni í héraðssamband? — Breytingin var gerð 1922, ári eftir að ég varð formaður Skarphéðins, og tillagan var samþykkt einróma. Eftir þessa breytingu stóraukast auðvitað verk- efnin hjá Skarphéðni; öll hin fjölbreyti- legu viðfangsefni ungmennafélaganna varð héraðssambandið nú að láta til sín taka. Haldin voru íþróttanámskeið og ýmis konar fræðslunámskeið, unnið að bindindismálum, skógrækt o. s. frv. HSK lét sig strax varða öll framfaramál í hér- aðinu. Landgræðsla og gróðurvemd var t. d. snemma á dagskrá hjá okkur. Árið 1938 ræddi ég um uppblásturinn á Haukadalsheiði og héraðsþing HSK gerði samþykkt í málinu. Héraðsskóla- málið var mikið rætt á sínum tíma, og Þátttakendur í fs- landsglímunni 1924 að lokinni keppni. Frá hægri: Sveinn Gunn- arsson, Ottó Marteins- son, Þorgeir Jónsson, Björn Vigfússon, Sig- urður Greipsson, Magnús Sigurðsson (Stórafjalli), Jón Jóns- son frá Laug og Stein- dór Valdimarsson. 8 S KI N FA X I

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.