Skinfaxi - 01.04.1972, Side 3
Timarit Ungmennafélags íslands — LXIII. árgangur — 2. hefti 1972 — Ritstjóri Eysteinn
Þorvaldsson — Út koma 6 hefti á árl hverju.
Gegn nýrri plágu
Hér á landi hafa að undanförnu auk-
izt mjög umræður um vaxandi notkun
fíkniefna og um skaðnautnir almennt.
Fundir og ráðstefnur hafa fjallað um
þessi efni, og það er athyglisvert að ungt
fólk á ríkan þátt í þessum umræðum og
hefur fjallað um málin af einlægni og
feimnislaust.
Hin svokölluðu eiturlyf eða ávana- og
fíkniefni eru orðin stórt þjóðfélagsvanda-
mál í mörgum löndum, og nú hefur þessi
vágestur knúið dyra hérlendis.
Það er mála sannast að flestar þjóðir
hafa gefizt upp við að uppræta áfengis-
neyslu, og fíkniefnavandamálið virðist
orðið óviðráðanlegt í sumum löndum.
Það er veik von en engin vissa að vegna
legu lands okkar megi okkur fremur en
öðrum þjóðum takast að búast til vam-
ar gegn ólöglegum innflutningi og dreif-
ingu fíkniefna. Allir þeir aðilar sem meta
einhvers heilbrigði og menningarlegt
uppeldi æskunnar, verða að taka hönd-
um saman í slíkum varnaðaraðgerðum.
Heilbrigðisstéttimar í landinu, kennarar
á öllum skólastigum og ekki sízt öll æsku-
lýðssamtök verða að berjast gegn út-
breiðslu fíkniefna af alefli. Fræðslustarf-
semi og áróður í þessu skyni má ekki
spara, en æskulýðssamtökin verða að fá
góðan stuðning yfirvalda til að geta í
sem stærstum mæli beint æskufólki að
heilbrigðum og þroskandi viðfangsefnum
og skapað því ákjósanlegar aðstæður til
tómstundastarfs. Samstarf, hreinskilni og
ráðleggingar þeirra aðila sem um þetta
vandamál fjalla, verður að samhæfa.
Þótt nokkuð hafi verið unnið að rann-
sóknum á útbreiðslu fíkniefna hér á
landi, er flest enn óljóst og þarf að upp-
lýsast betur. Sumir vara við orðræðum
um þessa hluti, en það er hættulegt að
loka augunum fyrir vandanum, og and-
varaleysi getur valdið því að við verðum
of sein til varnar. Ríkisstjórnin hefur góðu
heilli ákveðið að freista þess að taka mál-
ið föstum tökum og sett á laggirnar sam-
starfsnefnd fjögurra ráðuneyta til að
vinna í málinu. Einskis má láta ófreistað
til að koma í veg fyrir að ungir íslend-
ingar þurfi að verða fórnardýr þessarar
aðflutttu plágu, sem nágrannaþjóðirnar
hafa fengið bitra reynslu af.
Góðir ungmennafélagar, tökum virk-
an þátt í baráttunni gegn fíkniefnaneyzl-
unni, sem er mesta mengun mannlegs
samfélags.
H. Þ.
SKINFAXI
3