Skinfaxi - 01.06.1972, Blaðsíða 5
Ungmennasamband
Eyjafjarðar
50 ára
Jón Stefánsson, Dalvík, rakti sögu
Ungmennasambands Eyjafjarðar í af-
mælishófi UMSE í Víkurröst á Dalvík
hinn 22. apríl s.l.
UMSE var stofnað 8. apríl 1922 í gamla
KEA-húsinu á Akureyri. Sambandið var
reist á grunni Pjórðungssambands Norð-
lendinga, sem daginn áður var lagt nið-
ur formlega. Héraðssamböndin tóku við
af fjórðungssamböndunum, og á undan
höfðu bæði HSÞ og UMSS verið stofnuð.
Fyrstu stjórn UMSE skipuðu Jón Sig-
urðsson, Jóhannes Jónsson og Kristján
Karlsson, sem einn er á lifi af þeim
þremenningunum.
Fimmtán ungmennafélög eru nú í
UMSE úr öllum hreppum sýslunnar
nema Grímsey. Auk þess eru í samband-
inu Umf. Æskan á Svalbarðsströnd. Fé-
lagar eru nær eitt þúsund.
í tilefni þessa merkisafmælis Ung-
mennasambands Eyjafjarðar eru hér i
blaðinu birt viðtöl við nokkra forystu-
nrenn UMSE um starf, sögu og framtíð
afmælisbarnsins. Viðtölin eru á bls. 8—15.
Núverandi stjórn
UMSE. Fremri röð frá
vinstri: Birgir Marin-
ósson, Þóroddur Jó-
hannsson, framkv,-
stjóri, Sveinn Jónsson
formaður, Haukur
Steindórsson. Aftari
röð: Fáll Garðarsson,
Sigurður Jósefsson,
Sigurður V. Sigmunds-
son, Haukur Halldórs-
son og Vilhjálmur
Björnsson.
SKINFAXl
5