Skinfaxi - 01.06.1972, Blaðsíða 22
Iyft upp á bringu eins og að framan er
lýst. Síðan eru hnén beygð lítillega, þau
rétt snögglega og kröftulega jafnframt
því sem þyngdinni er ýtt upp á armana.
Þegar svo tækin eru komin upp fvrir
höfuðið er það beygt áfram og þyngdin
látin síga niður á axlirnar, um leið og
gefið er eftir í hnjám.
Síðar, þegar farið er að nota mun
þyngri tæki, koma sérstakar uppistöður
að miklum og góðum notum. A þessum
uppistöðum er stöngin látin liggja og þar
er viðbótarþyngdum bætt á eftir þörf-
um. Hæð uppistaðanna frá gólfi er bezt
þegar hún er því sem næst í axlarhæð.
Þegar rétt þyngd er á stönginni og
lyftarinn er tilbúinn gengur hann undir
stöngina, grípur um hana með axlimar
við stöngina og réttir síðan vel úr sér
og tekur þyngdina þannig af uppistöð-
unni. Síðan eru gengin nokkur skref frá
og æfingin framkvæmd.
Þegar þessi háttur er hafður á, um
hleðslu tækjanna, er hægt að gera æf-
ingar með talsvert meiri þunga á herð-
um, en ef taka ætti þyngdina upp frá
gólfi og leggja hana á herðarnar. Einkan-
lega á þetta við, þegar æft er án aðstoð-
armanns.
Sérhver æfing skal framkvæmd á hæfi-
legum hraða, og hreyfingahraðinn hefð-
ur sem jafnastur og helzt án rykkja.
Öll hreyfing vöðvans skal tekin út í
æfingunni.
Æfingaskrá
Færið inn alla æfingatíma ykkar í sér-
staka æfingadagbók. Þar skal fært inn
dagsetning, hvaða æfingar voru teknar
fyrir, fjöldi lota og endurtekninga og
hvaða þyngdir notaðar eru í hverri lotu.
Gott er að athuga æfingarnar öðru hvom
og bera þær saman við árangurinn í í-
þróttinni og breyta æfingunum eða lag-
færa eftir því sem nauðsyn krefur.
Ondunin
Andið frjálslega við æfingamar.
Venjulega er andað að sér í fyrri hluta
hreyfingarinnar en frá sér í síðari hluta
hennar. En, ef vinna vöðvanna, sam-
dráttur þeirra, virðist ekki fara vel við
innöndunina, þá er einfaldast að snúa
öndunartækninni við, þannig að út sé
andað við fyrri hluta en inn við síðari
hluta hreyfingarinnar.
Aðal atriðið er þó það, að forðast að
halda niðri í sér andanum meðan æfing-
in er framkvæmd.
Aðvömn
Gætið þessa framar öllu:
Flýtið aldrei svo mikið neinni hreyf-
ingu og/eða notið aldrei það mikinn
þunga við æfinguna, að hætta geti skap-
ast þess vegna á að vöðvar stlitni eða
ofreynist.
Framkvæmið æfinguna á réttan hátt
og aukið alltaf þyngdirnar hægt — lítið
í einu.
Og er hægt er þá hefjið lyftingaæfing-
ar vkkar undir tilsögn kennara!
22
SKINFAXI