Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.06.1972, Blaðsíða 20

Skinfaxi - 01.06.1972, Blaðsíða 20
Niðurröðun æfinga í tíma Það er talinn vera góður vani að Ijúka alltaf öllum lotum sömu æfingar áður en tekið er til við næstu æfing: Þó eru til undantekningar frá þessu og er þeirra þá venjulega getið hverju sinni við tilsögn æfinganna. T. d. eru oft teknar æfingar fyrir arm- ana strax á eftir djúpum hnebeyjum þinnig, að eftir 1. lotu fótaæfinganna er 1. lota armæfinganna tekin strax, þá hvílt og síðan er 2. lota æfinganna beggja teknar í sömu röð. Aukning þyngdar Þegar hafnar eru reglulegar æfingar með þyngdum, finnur sá, sem æfir, mjög fljótt mun á sér og fær það á tilfinning- una að kraftamir aukist með stökkbreyt- ingum. Starx eftir 1. vikuna er trúlegt að þyngdimar, sem byrjað var með. fari að verka svo, sem þær séu of léttar. Þegar svo ber við, er einfaldast að þyngja ör- lítið eða um 1-2 kg. hvert sinn fyrir arm- æfingarnar en um 2-3 kg. á fóta- og bak- æfingar. Ekki skal þyngt um meira í einu, en ef nauðsyn krefur, þá er hægt að auka lítillega í hverjum æfingartíma, þannig að aukningin verði alls urh 3-7 kg. vfir vikuna (þrjár æfingar). Þegar hámarksþunga æfingarinnar er náð, kemst sá, sem æfir, óþvrmilega að því, að ekki er hægt að auka þyngdimar stöðugt vikulega. En af því skulu þó engar áhyggjur hafðar, heldur æft á- fram og síðan þvngt, þegar hægt verður. Aldrei skal revnt að flýta þróuninni eða fara fram úr henni. Einbeitni þarf til að auka aðeins smátt Lyftingaáhöld gcfa iþróttasölum aukiö gildi fyrir iþróttafólk. og smátt við þyngdirnar og miða aukn- ingu þyngdanna við aukna krafta ein- staklingsins. Það skiptir eiginlega engu hve hægt fer því sá, sem þannig æfir, mun samt tvöfalda afl sitt á tólf mánuðum. (Þessi fullyrðing er tekin úr ritum sænska lyft- ingasambandsins og sögð þar vera skv. rúsnesskum rannsóknum.) Æfingatíminn Reynt skal að Ijúka hverjum æfinga- tíma þannig, að íþróttafólkinu finnist sem það hefði getað örlítið meira. Aldrei skal æft svo, að farið sé út úr íþróttasalnum alveg örmagna. Sá, sem æfir, verður að halda sér vel heitum við æfingamar og milli þeirra. Bezt er að æfa í sal með góðri lýsingu og loftræstingu, en þar má engin drag- súgur vera. Bezt er að vera í æfingagalla eða létt- um buxum úr ullarkendu efni og í peysu svo góð útgufun líkamans sé tryggð. Upphitun er jafn nauðsynleg í upphafi lyftingatímans eins og í byrjun sérhvers æfingartíma. Ekki er ráðlegt að byrja 20 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.