Skinfaxi - 01.06.1972, Síða 9
— Hvað er helzt hægt að gera til að
auka félagsmálaáhugann?
— Við héldum s.l. vetur félagsmála-
námskeið sem heppnaðist mjög vel. Þátt-
'takendur voru um 80, og þeim var
skipt í fimm deildir á ýmsum stöðum í
héraðinu. Við stefnum að því að halda
slíkri starfsemi áfram, bæði með nýjum
byrjendanámskeiðum og framhaídsnám-
skeiðum. Við þurfum að fá fleiri starf-
sama félaga í ungmennafélögin og í hér-
aðssambandið, og þessi starfsemi stuðlar
mjög að því. Starfsemi sumarbúðanna er
afar mikilvæg í þeirri viðleitni að virkja
starf unglinganna sem fyrst, og tengja þá
félagsstarfinu í ungmennafélagshreyf-
ingunni. UMSE hefur líka haft góða
samvinnu við skólana í héraðinu um
ýmsa félagsstarfsemi, svo sem spurn-
ingakeppni, ritgerðakeppni og bindind-
isfræðslu. Það er sjálfsagt að félags- og
íþróttaaðstaða hinna nýju skóla nýtist
sem bezt, og mikilvægt fyrir skólana
líka að vera ekki bundnir við ítroðsluna
eina.
— Ertu bjartsýnn á framtíðarstarf-
ið?
— Já, áhuginn á starfi ungmennafé-
laganna fer vaxandi. Starf UMFÍ hefur
líka eflzt mikið síðustu árin, og það er
okkur mikil hvatning, hversu heildar-
samtökin hafa fylgzt vel með starfi okk-
ar og sýnt því áhuga. Sú einróma viður-
kenning, sem starf UMSE hefur hlotið í
sambandi við afmælið, sýnir okkur að
fólkið í héraðinu metur ungmennafélög-
in mikils og vill efla þau. Þetta er auð-
vitað mikil hvatning fyrir forystu ung-
mennafélaganna og eflir allan starfs-
þrótt UMSE.
UMSE hefur jafnan
sent stóra sveit keppn-
isfólks á landsmót
UMFÍ. Myndin er af
Eyfirðingum, er þeir
gengu inn á leikvang-
inn á landsmótinu á
Laugarvatni 1965.
SKINFAXl
9