Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.06.1972, Side 14

Skinfaxi - 01.06.1972, Side 14
Ungmennabúðirnar verða sífellt vinsælli Birgir Marinósson Ungmennasamband Eyjafjarðar hefur starfrækt ungmennabúðir árum saman, og síðustu þrjú árin hefur Birgir Mar- inósson stjórnað þeim. f sumar voru haldin tvö námskeið í ungmennabúðum UMSE, og við hittum Birgi, þegar hann var að koma frá því að slíta seinna námskeiðinu. — Hvað eru þetta löng námskeið, og hvernig er þátttakan? — Þetta eru 8 daga námskeið. Á fyrra námskeiðinu voru 45 unglingar á aldrinum 12—14 ára, en á því seinna 46 börn á aldrinum 8—11 ára. Aðsókn- in hefur verið mjög góð og vaxandi, en við teljum að hóparnir megi ekki vera stærri en þetta í einu svo að hver og einn fái að njóta sín sem bezt. — Og hver eru viðfangsefnin í ung- mennabúðunum? — Á daginn eru fyrst og fremst kenndar og æfðar íþróttir: frjálsar íþróttir, knattleikir og sund. Þá er einn- ig veitt tilsögn í hjálp í viðlögum og Gísli Ólafsson yfirlögregluþjónn kennir umferðareglur, m. a. með myndasýning- um. Á hverju kvöldi eru svo kvöldvök- ur, og við leggjum áherzlu á að bömin sjái sjálf um dagskráratriðin, og þetta hefur gefizt mjög vel. Við leggjum mik- ið upp úr söng, og söngurinn hjálpar á öllum sviðum. — Hvaðan koma þátttakendurnir? — Þeir koma úr ýmsum sveitum hér- aðsins, og það er áberandi að stöðugt vex þátttakan úr þeim hreppum sem senda flesta unglinga. Þessi starfsemi mælist vel fyrir í sveitunum og fær já- kvæðar undirtektir bæði hjá foreldrum og börnunum sjálfum. — Hvers virði er þessi starfsemi fyr- ir félagsstarfið? — Það er erfitt að ineta það, en hún er tvímælalaust mikils virði. Það er mik- ilvægt að börn og unglingar komist snemma í kynni við íþróttir og frjálst félagsstarf, og þótt margir heltist svo úr 14 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.