Skinfaxi - 01.06.1972, Síða 18
Jörgen Kjensli Noregi
Stein Söbstad Noregi
8,35
8,31
Þess má geta að verndari Andrésar
andar-leikanna var Sonja krónprinsessa
sem var viðstödd mótið. Leikarnir eru
skipulagðir af norska frjálsíþróttasam-
bandinu, fþróttafélaginu í Kongsberg
og af Donald Duck & Co. Frjálsíþrótta-
samband íslands sá um undirbúning hér
heima.
Beztu
f r j álsíþróttaaf rek
íslendinga
frá upphafi til 1972 heitir nýútkomin
skrá, sem Ólafur Unnsteinsson hefur tek-
ið saman og Frjálsíþróttasamband ís-
lands gefur út. Skráin nær bæði yfir af-
rek kvenna og karla, utaríhúss og innan.
í skránni um karlagreinar utanhúss
eru 100 beztu menn í hverri grein til-
greindir. Þetta er hin gagnmerkasta
heimild, og mikil vinna liggur í þessari
stóru og vönduðu skrá. Fjöldi mynda af
frjálsíþróttafólki prýðir ritið.
Ritið fæst í Bókaverzlun ísafoldar, hjá
FRÍ og á skrifstofu UMFÍ og kostar kr.
200,—.
BLÁSKÓGA-
SKOKKIÐ
VARÐ VINSÆLT
Það var trimmnefnd Héraðssambands-
ins Skarphéðins sem efndi til Bláskóga-
skokksins svonefnda, en það fór fram
2. júlí. Hlaupið var rúma 15 km. úr
Gjábakkahrauni til Laugarvatns.
Það voru hvorki meira né minna en
300 manns sem tók þátt í hlaupinu, og
er það ánægjulegur vottur þess að fólk
kunni að meta hollustu hreyfingarinnar
og útiveru. Nokkrir kunnir keppnismenn
tóku þátt í hlaupinu, og það kom engum
á óvart að Jón H. Sigurðsson skyldi
sigra með yfirburðum. Annar varð Hall-
dór Matthíasson, Akureyri og þriðji Níels
Níelsson. Nokkrir kornungir piltar veittu
þessum köppum samt ótrúlega harða
keppni og af þeim vakti Ágúst Þ. Gunn-
arsson mesta athygli. Börn allt nið-
ur í 10 ára aldur virtust Ijúka þrautinni
léttilega, en sá elzti, Páll Hallbjömsson,
var 74 ára. Þrautinni töldust þeir hafa
lokið sem komu í mark innan þriggja
klukkustunda eftir að lagt var af stað,
og öllum þátttakendum tókst það.
18
SKINFAXI