Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.06.1972, Page 19

Skinfaxi - 01.06.1972, Page 19
Guðmundur Þórarinsson: LYFTINGATÆKI OG NOTKUN ÞEIRRA Seinni hluti Fyrri hluti þessarar greinar birtist í 1. hefti blaðsins á þessu ári Framkvæmd æfinganna. Sá, sem æfir með lvftingatækjum verð- ur alltaf að vera viss um að sérhver æf- ing sé ætíð rétt framkvæmd, þannig að vöðvar, sem eiga að dragast saman, drag- ist saman að fullu eða öfugt að þeir verði eins langir og þeir geta lengstir orðið. Ef æfingin gerir ráð fyrir að armar séu teygðir upp, þá verður að rétta olbog- anna alveg og loka þeim í enda hreyf- ingarinnar auk þess, sem axlir eru teygð- ar upp eins og armarnir. Ef einhver finnur að hann skortir mýkt í einhvern hluta líkamans, þá skal ekki reynt að þvinga fram aukna mýkt, held- ur reyna að láta hana aukast smátt og smátt. Hvíldir Eftir hverja útfærða æfingu skal gert smá öndunarhlé, en dálítil hvíld er tek- in eftir hverja lotu. Þetta kerfi, að auka þyngdirnar með hverri viðbótarlotu, er mikilvægt því þannig er hægt að leggja meira erfiði á vöðvana en eíla áður en þreytan fer að segja til sín. Þetta kann að virðast ein- kennileg fullyrðing, en reynslan hefur sýnt að þyngdimar í 3ju lotu geta verið töluvert meiri en ella ef vöðvarnir hafa hitnað nógu rækilega í fyrri lotunum með léttari þyngdirnar. Þegar hvílt er milli lota, verða allir að gæta þess vel að láta sig ekki kólna, Þeir verða að halda sér vel heitum með létt- um hreyfingum, teygjuæfingum og göngu um salinn. SKINFAXI 19

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.