Skinfaxi - 01.08.1972, Blaðsíða 4
Nú og
fyrrum.
Myndin af hjú-
unum til hliðar
sýnir búninga
sundfólksins frá
Bandaríkjunum
á olympiuleik-
uniun 1 haust.
En myndin að
neðan er af
bresku sveitinni
sem sigraði i
4x100 m. boð-
sundi kvenna,
frjálsri aðferð, á olympiuleikunum í Stokk-
hólmi 1912. Sú prúðbúna 1 miðjum hópnum
er auðvitað þjáifari liðsins.
FORSÍÐU-
MYNDIN
er af Karli W.
Frederiksen
UMSK, er
hann setti nýtt
UMFÍ-met í
hástökki í sumar er hann stökk 1,95 m.
Karl stekkur svonefndan Fosbury-stíl, og
hefur enginn stokkið eins hátt með því
stökklagi hér á landi.
(Ljósm. Gunnar Heiðdal)
UMSK 50 ARA
^-iíf Ungmennasamband Kjal-
amesþings A fimmtugsaf-
mæli um þessar mundir. í
tilefni þess er í blaðinu
viðtal við formann UMSK, Sigurð Skarp-
héðinsson, og einnig er grein um starf-
semi og ýmsar framkvæmdir sambands-
ins á þessum merku tímamótum í sögu
þess.
Áskriftargjöld.
Um þessar mundir er verið að innheimta
áskriftargjöld Skinfaxa, og annast skrif-
stofa UMFÍ innheimtuna. Áskrifendur
eru beðnir að bregðast við skjótt og vel.
Áskriftargjaldið er kr. 200.00.
4
SKINFAXI