Skinfaxi - 01.08.1972, Blaðsíða 10
Þetta eru tvö liö barna í innanhússknatt-
spyrnu, þar a£ þrjár stúlkur. Allar myndimar
eru teknar á íþróttahátíö' á Höfn í fyrra, þar
sem kynnt var íþróttastarfiö á staö'num.
leið og við reynum auðvitað að efla
frjálsar íþróttir áfram. Knattspyman býr
raunar við erfiðar aðstæður hér. Við er-
um í Austurlandsriðli í 3ju deild íslands-
mótsins, og Austfjarðaliðin eru treg að
ferðast hingað vegna vegalengdarinnar,
en við viljum auðvitað hafa einhverja
heimaleiki eins og aðrir. Körfuknattleik-
ur hefur verið iðkaður í öllum aldurs-
flokkum á Höfn nú á þriðja ár að vetrin-
um og nýtur mikilla vinsælda. Nú er
verið að taka körfuboltann á dagskrá í
skólum á tveimur öðrum stöðum í hérað-
inu, þ. e. hjá Umf. Mána í Nesjum og
Umf. Öræfa.
— Er félagslegur áhugi almennur á
Höfn?
— Hann er allgóður á veturna, en á
sumrin er deyfð yfir félagsmálum og
reyndar íþróttum líka. Þetta á sér aug-
ljósa ástæðu sem erfitt er að ráða við.
Strax og skóla lýkur á vorin fara ungl-
ingarnir í fiskvinnu 10—12 stundir á dag.
Það segir sig sjálft að þetta dregur úr
frjálsu æskulýðsstarfi, en við erum samt
bjartsýnir á að okkur takist að efla félags-
líf og íþróttastarf nú eftir að aðstæður
hafa byrjað að batna með hinni nýju
samvinnu við sveitarfélagið. íþróttahús
er ekkert hjá okkur ennþá, en það mvndi
auðvitað gjörbreyta aðstöðunni.
Stjórn Umf. Sindra og æskulýðsráð
Hafnarhrepps skipa:
Sigvaldi Ingimundarson fonnaður, Bragi
Ársælsson ritari, Eiríkur Beck gjaldkeri,
Kristján Hjartarson fonnaður íþrótta-
nefndar og Gunnlaugur Þröstur Hösk-
uldsson formaður skáknefndar.
Afmælisrit UMSE
í síðasta hefti Skinfaxa var getið um 50
ára afmæli Ungmennasambands Eyja-
fjarðar, sem er á þessu ári. Nú er komið
út veglegt afmælisrit UMSE, sem þeir
Birgir Marinósson, Hörður Jóhannsson og
Þóroddur Jóhannsson ritstýra.
í ritinu er saga UMSE rakin og kveðju-
ávörp frá mörgum aðilum, m. a. forseta
íslands, dr. Kristjáni Eldjárn, sem er Ey-
firðingur að ætt. Fjallað er um alla aðal-
þætti í starfi sambandsins og sérlega
fróðlegir viðtalsþættir eru við eldri og
yngri ungmennafélaga úr héraðinu um
starfið fyrr og nú innan UMSE. Fjölmargt
annað efni er i ritinu, svo sem söguágrip
sambandsfélaga, afrekaskrár o. m. fl.
10
SKINFAXI