Skinfaxi - 01.08.1972, Page 6
ÍSÍ og íþróttafulltrúi ríkisins að sjá um
í samráði við UMFI, og er þess að vænta,
að tekið verði til við það starf nú, þegar
hinn hlutinn hefur farið svo vel af stað.
Gott fræðsluefni.
Fullyrða má að vel hafi tekizt til um
öflun fræðsluefnis fyrir félagsleiðtoga-
námskeiðið. Námsefnið fyllti tvær möpp-
ur, og fræðslukaflarnir, sem búið er að
vinna og lagðir voru fram á námskeið-
inu heita: 1. Tilhögun náms, 2. Félög, 3.
Félagsstörf, 4. Áætlanagerð og skiuplag
starfseminnar, 5. Stofnun félaga, 6. Sam-
komuhald, 7. Fundarstjóm og fundar-
sköp, 8. Ræðumennska, 9. Æskan og
íþróttir, 10. Heilbrigt líf, 11. Foringinn,
forystuhæfileikar. í möppu II eru þessir
þættir: 1. Starf ritara, 2. Starf gjaldkera,
3. Undirbúningur sérstakra verkefna, 4.
Kynningarstarf, 5. Lög og reglugerðir er
varða ungt fólk, 6. Samstarf félaga við
heimili og skóla, 7. Ferðalög og farar-
stjóm, 8. Frumatriði í skyndihjálp, 9.
Námskeiðshald, 10. Félagsheimili.
Fræðsluefni það, sem lagt var fram
á námskeiðinu, var ýmist þýtt eða frum-
Þátttakendur i félagsleiðtoganámskeiðinu að
Leirá.
samið af undirbúningsaðilum. Þýdda
efnið er að meginhluta úr grunnskóla
norska íþróttasambandsins, en nokkuð
frá danska íþróttasambandinu. 13 þættir
af 21 voru gerðir hér á landi.
Góð þátttaka.
Félagsleiðtoganámskeiðið að Leirár-
skóla sátu 45 þátttakendur, stjórnendur,
gestir og verðandi leiðbeinendur í félags-
leiðtogaþjálfun. Gestir voru Orlygur
Geirsson, form. ÆRR og þrír af forystu-
mönnum fræðslumála noska íþróttasam-
bandsins, þeir Oddvin Lundanes, fram-
kvæmdastjóri norsku ungmennafélag-
anna og formaður æskulýðsráðs Noregs,
Bjarne Yngsöy, skrifstofustjóri norska í-
þróttasambandsins og Caspar Övre, for-
maður fræðslunefndar norska íþróttasam-
bandsins. Norsku gestimir fluttu fróðleg
erindi með myndskýringum um uppbygg-
ingu fræðslustarfs af þessu tagi í Noregi.
Vel heppnað.
Námskeiðið þótti takast mjög vel, og
var aðstaða öll í Leirárskóla og viður-
gjörningur til sóma. Að loknu þessu
námskeiði hafa 42 félagsmálamenn öðl-
ast rétt og viðurkenningu ÆRR til með-
ferðar á áðurnefndu fræðsluefni og geta
því veitt forstöðu félagsmálanámskeiðum
í sínum heimahéruðum og kennt þar.
Þessir nýju félagsmálaleiðbeinendur eru
víðsvegar af landinu. 19 eru frá UMFÍ
og aðiklarsamböndum þess, 8 frá ÍSÍ og
íþróttabandalögum kaupstaðanna og 15
frá öðrum æskulýðssamtökum.
Ætlunin er að nota fræðsluefni þetta
í tilraunaskyni næstu tvö árin, en þá
verður það endurskoðað að fenginni
reynslu og búið til prentunar.
6
SKINFAXI