Skinfaxi - 01.08.1972, Qupperneq 7
Illuti námsskeiðis
manna, önnum kafinn.
í ræðustól er Guð-
mundur Gíslason, en
til hliðar við hann má
sjá Guðmund Guð-
mundsson, Sigurö R.
Guðmundsson, Sigurð
Geirdal og Hafstein
Þorvaldsson.
Formaður ÆRR gat þess, að nú yrði
tekið á móti umsóknum um heimild til
að halda félagsmálanámskeið, og þarf
kostnaðaráætlun að fylgja umsókninni.
Akveðið væri í framhaldi af þessu að
leyfa nú þrjú eins konar tilraunanám-
skeið með námsefnið, eitt í þéttbýh
(kvöldnámskeið), eitt helgarnámskeið í
dreifbýli og eitt fyrir starfandi kennara
í hinu almenna skólakerfi.
Var mikill hugur í þátttakendum að
taka til óspilltra mála við félagsmála-
þjálfunina. Þótti mikill fengur að nám-
skeiðinu og því efni, sem þar kom fram,
en tilfinnanlegur skortur hefur verið á
handhægu fræðsluefni til félagsmála-
kennslu. Ljóst er að mikið á eftir að
endurbæta þetta efni og auka við það,
einkum myndaefni af ýmsu tagi..
Góður félagsandi.
Ágætur félagsandi ríkti á námskeiðinu,
sem auk alls annars varð til þess að auka
mjög kynni og samstarf forystumanna í
félagsmálum víðs vegar um land. Vinnu-
andinn var glaðvær og áhugasamur og
kom glöggt fram í ötulu hópstarfi þátt-
takenda, blaðaútgáfu, félagsstofnun og
baráttu rétt kjörinnar stjórnar við niður-
rifsöflin. Margs konar félagsleg atriði
voru sett á svið í ,,verklegu námi“. Fé-
lagsfundurinn í „Leirgerði", en svo hét
félagið sem stofnað var, mun lengi minn-
isstæður þeim, er hann sátu, einkum
fyrir ræðusnilld ýmissa þátttakenda og
æðruleysi formanns félagsins, sem aldrei
bifaðist þrátt fyrir harða ádrepu her-
skárra félagsmanna.
Söngur var í hávegum hafður meðan
námskeiðið stóð, og að því loknu gátu
þátttakendur fengið á segulbandsspólum
þá kvöldvökusöngva, sem þeir höfðu æft
og sungið.
SKINFAXI
7