Skinfaxi - 01.08.1972, Qupperneq 9
nefndin skipaði stjórn Ufm. Sindra í heild
sem æskulýðsráð í þorpinu, og veitti 100
þúsund krónur til framkvæmda til vors.
— Og hvað hyggist þið gera?
— Það er reyndar ekki nema vika
síðan þessi ákvörðun var tekin. En við
byrjuðum strax og höfum „opið hús“ fyr-
ir unglingana, þar sem rætt var við þá
og þeim kynnt ýmis áform. Ljósmynda-
klúbbur verður efldur, og líka skák-
klúbbur, sem starfað hefur á veturna á
vegum ungmennafélagsins. Þá ætlum við
að koma á borðtennisæfingum a. m. k.
einu sinni í viku, og margt fleira er í at-
hugun. Við erum ákveðnir í að reyna að
skipuleggja starfið frá grunni og veita
börnum og unglingum eins fjölbreyttan
starfsvettvtng og mögulegt er. I þessum
tilgangi hefur einmitt námskeiðið á Leir-
á gefið mér gott vegarnesti og styrk til
að byggja upp þessa starfsemi og kemur
líka að góðu gagni við skólastarfið.
íþróttastarf USÚ.
— Nú ert þú þjálfari hjá Ungmenna-
sambandinu Úlfljóti á sumrin. Hvemig
er íþróttastarfið þar?
— Það mætti vera betra og almenn-
ari þátttaka, og það er of einhliða bund-
Lyftingar eru mikilvæg undirstöðuþjálfun.
XJngir Hafnarbúar að stæla kraftana.
Eldri sem yngri stunda körfuknattleik á Höfn.
Þetta eru old boys, sem urðu að láta í minni
pokann fyrir valkyrjunum, þrátt fyrir snarpa
vörn.
ið við frjálsar íþróttir. Knattspyrna er
samt talsvert iðkuð á Höfn og allmikill
golfáhugi er þar líka. Við höfum lengi
haft samskipti við UIA í frjálsum íþrótt-
um, og í sumar átti árleg keppni héraðs-
sambandanna að vera í Mánagarði í
Nesjum. Við höfðum undirbúið þama
tveggja daga mót með íþróttakeppni og
ýmsum öðmm dagskrárliðum, en þegar
við vorum mætt til leiks á vellinum, kom
tilkynning frá Austfirðingunum þess efnis
að þeir gætu ekki komið. Þetta fannst
okkur mjög miður, en auðvitað liéldum
við mótið með okkar fólki og öllum dag-
skrárliðum, og það heppnaðist vel.
Fleiri íþróttagreinar.
— Em horfur á að fjölbreytnin í í-
þróttum aukist?
— Já, ég held að það muni takast um
SKINFAXI
9