Skinfaxi - 01.08.1972, Qupperneq 11
Sigurður Geirdal:
LEIKRITASAFN
Leikritasafn UMFf
nýtur vaxandi vinsælda
Nú hefur starfsemi Leikritasafns UMFÍ
tvo vetur að baki. Það hefur verið á-
nægjulegt að vinna að þessum þætti í
starfsemi UMFÍ enda hefur leikþáttun-
um verið afar vel tekið og hafa þeir víða
bætt úr brýnni þörf, bæði hjá félögum
og skólum, um það bera vingjarnleg
þakkabréf til skrifstofunnar vitni.
Leikritamappa I er nú fullskipuð og
eru í henni 60 leikþættir, Mappa II fylg-
ir í kjölfarið og mun hún innihalda, auk
leikþátta, margskonar leiki og önnur at-
riði sem líkleg eru til þess að lífga uppá
kvöldvökur og skemmtanir, einnig er
ætlunin að þar verði sett upp nokkur
dæmi um uppsteningu og framkvæmd
skemmtikvölda.
Þeir aðilar sem leikritasafnið eiga og
njóta þjónustu okkar varðandi kvöld-
vökuefni, eru nú rúmlega 150 og fer
fjölgandi með hverjum degi sem líður,
einkum hafa barna- og unglingaskólarnir
í landinu verið duglegir við að notfæra
sér þetta efni.
Helzta vandamál safnsins í dag er að
hafa uppá höfundum þáttanna og má
raunar segja að það sé í mörgum til-
fellum óleysanlegt verk, enda vita þeir
sem senda okkur þættina þá lítil deili á
þeim, önnur en þau að þátturinn var
einhverntíman notaður á kvöldvöku í fé-
laginu e. t. v. fyrir mörgum árum, ein-
hverjir þýddu þáttinn eða sömdu, þessir
aðilar eru svo e. t. v. farnir úr félaginu
(skólanum) o. s. frv. Við verðum því að
biðja alla sem senda okkur efni að geta
um höfunda sé þess nokkur kostur.
Þetta hefur svo það í för með sér að
hugsanlegt er að við neyðumst til að aft-
urkalla einhverja þætti, ef í ljós kemur
að einhver aðili hefur einkarétt á útgáfu
þeirra, eða ef ekki semst við höfund um
að fá að nota þátt sem sendur hefur verið
út áður en höfundur fannst. Fari svo þá
munum við að sjálfsögðu senda aðra
þætti i staðinn.
Við vonumst þó eindregið til þess að
hjá slíku verði komizt og leikritasafnið
haldi áfram að vaxa og dafna, því það
er sannfæring okkar, sem að safninu
stöndum, að við séum að vinna þarft
verk.
SKINFAXI
11