Skinfaxi - 01.08.1972, Síða 15
hús þarna. Það hefur mikla þýðingu að
eiga aðgang að slíkum stað til að æfa
íþróttahópa, ekki bara fyrir íþróttaæf-
ingarnar heldur líka til að bæta og auka
félagsandann.
— Eru fá íþróttahús á UMSK-svæð-
inu?
— Það er stórt íþróttahús í Kópavogi
og annað stórt með áhorfendasvæðum á
Seltjarnamesi. í Garðahreppi er svo byrj-
að á smíði nýs húss, sem verður með á-
horfendasvæðum, og það sem meira er,
þar verður líka aðstaða til félagsstarf-
semi fyrir þá sem æfa. Fólk getur setzt
niður á vistlegum stað í húsinu eftir æf-
ingar og rætt sameinginlegt áhugamál.
Þessi hús, sem eru á svæðinu, eru of fá,
og ekki hægt að fá inni með okkar mót
í þeim nema í æfingatímum félaganna.
— En íþróttavellir?
— Á svæðinu eru enn engir vellir
nema lélegir malarvellir. En nú er vand-
aður völlur í byggingu í Kópavogi, og
malarvöllurinn að Varmá verður líka
fullkominn frjálsíþróttavöllur með 400 m.
hlaupabraut.
— Er félagsáhugi ríkjandi hjá ykkur?
— Ekki nógu mikill, en við höfum
síðastliðið ár sinnt félagsmálunum meir
en áður hefur verið gert. Félagsmála-
námskeið var haldið á vegum Félags-
málaskóla UMFI og Ungmennafélags
Aftureldingar síðast liðinn vetur og
tókst mjög vel. Framkvæmdastjóri okk-
ar, Guðmundur Gíslason, sótti félags-
leiðtoganámskeiðið að Leirá. Það er ó-
hætt að segja að áhugi er mjög að auk-
ast á þessum málum, og nú hafa þrjú
félög í UMSK óskað eftir félagsmála-
námskeiðum á næstunni. Það er líka
mikil nauðsyn að efla félagsmálin og
Frá fyrsta héraðsmóti IJMSK i borðtennis.
Það er hinn kunni knattspyrnumaður Guð-
mundur Þórðarson sem reiðir spaðann.
þjálfun fólks í þeim, því víða er skortur
á fólki til virkra félagsstarfa og forystu í
félögum. Við erum núna að leita hóf-
anna um samvinnu við skólana á félags-
svæðinu um félagsmálafræðslu og höf-
um fengið mjög góðar undirtektir,
SKINFAXI
15