Skinfaxi - 01.08.1972, Blaðsíða 17
þetta verður malar-knattspymuvöllur.
Við hlið vallarins er svo stór grasflöt.
Jón Guðmundsson oddviti á Reykjum
hefur manna lengst barizt fyrir því að
komið yrði upp fullkomnu landsmóts-
svæði að Varmá, og lýsti hann á fund-
inum yfir ánægju sinni yfir því að nú
væri sá draumur að rætast. Hrólfur
Ingólfsson sveitarstjóri skýrði frá því að
hreppurinn hefði lagt fram 600 þus. kr.
til hinnar nýju vallargerðar. Á þessum
stað er vönduð sundlaug og skólamann-
virki auk félagsheimilisins Hlégarðs, og
hlýtur að koma að því áður en langt um
líður að landsmót UMFÍ verði haldið á
þessum stað.
íþróttamiðstöðin
UMSK í samvinnu við Aftureldingu
í Mosfellssveit hefur nú í fyrsta skipti
hafið rekstur íþróttamiðstöðvar að
Varmá í Mosfellssveit. Starfsemi stöðv-
arinnar er tvenns konar:
Annars vegar æfingabúðir, þar sem
stöðin er leigð íþróttahópum í skemmri
eða lengri tíma.
Hins vegar eru ungmennabúðir, þar
sem tveir íþróttakennarar taka 25—30
börn til dvalar og kenna þeim íþróttir
og ýmsar umgengnisvenjur.
Voru haldin sex námskeið í sumar
fyrir böm á aldrinum 8 til 14 ára.
Hugmyndin að rekstri íþróttamið-
stöðvar kviknaði vegna skort á æfinga-
aðstöðu aðildarfélaganna og til að full-
nægja félagsþörf unglinga í þéttbýlinu.
Hafa ráðamenn Mosfellshrepps sýnt
þessu máli mikinn skilning og gert hug-
myndina framkvæmanlega með því að
leigja heimavist Gagnfræðaskólans að
Varmá til rekstursins.
Frá sumarbúðum UMSK að Varmá s. 1. sum-
ar. Kátir krakkar keppast um að komast sem
fyrst í sundlaugina.