Skinfaxi - 01.08.1972, Side 18
Stjórn UMSK, frá v.:
Júlíus Arnarson ritari,
Margrét Bjarnadóttir
meðstjómandi, Steinar
Lúðviksson varaform.,
Sigurður Skarphéðins-
son formaður, Benóný
Pétursson, Guðmundur
Gíslas. framkvæmda-
stjóri UMSK og J>or-
valdur Áki Eiríksson.
Afmælið
I tilefni af 50 ára afmælinu hefur ver-
ið reynt að fitja upp á ýmsum nýjungum
í starfinu. Meðal annars hefur UMSK
nú hafið útgáfu fréttablaðs til kynning-
ar og upplýsinga um starf sambandsins
og þá ekki sízt þeirra félaga sem mynda
UMSK.
Stofnað var til happdrættis til fjáröfl-
unar og fengu aðildarfélög 25% sölu-
laun. Gafst happdrættið nokkuð vel og
styrkti starfsemina ríkulega.
í vetur var boðað til kynningarfundar
með stjórnum félaganna og fluttu þar
m. a. erindi Hafsteinn Þorvaldsson for-
maður UMFÍ, Reynir Karlsson æskulýðs-
fulltrúi ríkisins og Sig. Geirdal framkv.
stj. UMFÍ.
Lögð hefur verið áherzla á að halda
afmælismót í flestum greinum íþrótta,
sem lögð er stund á. Ljóst er að sífellt
fjölgar greinum sem stundaðar eru inn-
an sambandsins og má þar meðal ann-
ars nefna, að í vor var fyrsta badminton-
mót UMSK haldið og í ráði er að efna
til borðtennismóts í haust. Einnig er
iðkun fimleika í örum vexti.
Fyrirhugað er að gefa út vandað af-
mælisrit með sögu sambandsins. Einnig
verður reynt að vanda til næsta sam-
bandsþings, sem verður 50. ársþing sam-
bandsins.
UMSK er samtök ungmenna- og
íþróttafélaga norðan Hafnarfjarðar að
Hvalfjarðarbotni að undanskilinni
Reykjavík. í UMSK eru nú 9 íþróttafé-
lög með um 2000 félaga alls.
Stofnað
Umf. Afturelding, Mosfellssv. 1909
Umf. Drengur, Kjósarhreppi 1915
Umf. Bessastaðahr., Bessastaðahr. 1929
Umf. Kjalnesinga, Kjalarnesi 1938
Umf. Breiðablik, Kópavogi 1950
Guðbjörn
Guðmundsson
fyrsti
formaður
UMSK.
18
SKINFAXI