Skinfaxi - 01.08.1972, Side 19
J j - Jwbw 1 1 MslÍKvti Mray ^ .SKí' -
Hópur keppenda sem tók þátt í borðtennis
móti UMSK.
Umf. Stjarnan, Garðahreppi 1960
íþróttafél. Grótta, Seltjarnarneshr. 1967
Handknattleiksfél. Kópavogs, Kópv. 1970
íþróttafél. Gerpla, Kópavogi 1971
Starfsemi innan sambandsins hefur
vaxið hröðum skrefum undanfarin ár og
hefur það kallað á fastan starfskraft til
að annast málefni þess. Ilefur nú í fyrsta
skipti verið ráðinn starfsmaður allt árið
um kring, einnig hefur sambandið kom-
ið sér upp skrifstofu að Klapparstíg 16
í Reykjavík. Framkvæmdastjóri UMSK
er Guðmundur Gíslason, en stjóm
UMSK skipa:
Sigurður Skarphéðinsson, form., Stein-
ar Lúðvíksson, Þórhallur Þórhallsson,
Guðmundur Gíslason, Einar Gunnlaugs-
son, Ólafur Friðriksson, Sveinbjörn Guð-
mundsson og Þorvarður A. Eiríksson.
Minjapeningur U M S K
í tilefni af 50 ára afmæli Ungmenna-
sambands Kjalarnesþings hefur verið
gerður minnjapeningur úr silfri og eir.
Er peningurinn seldur til ágóða fyrir
starfsemi samtakanna, sem fer hraðvax-
andi bæði á félagslegu og íþróttalegu
sviði.
Peningurinn er teiknaður á auglýsinga-
stofu Kristinar. Er áletrun annars vegar,
en á bakhlið er einfalt og algilt tákn
fyrir leiki, „knöttur". Smíði peningsins
annaðist Þorgrimur Á. Jónsson gullsmið-
ur. Er hann 33 mm. í þvermál og silfur-
peningurinn 22 grömm, en eirpeningur-
inn 19,2 grömm. Upplag peningsins er
lítið, eða 200 silfurpeningar og 300 eir-
peningar. Verð peninganna verður 1500.—
kr. fyrir silfurpening og 750.— fyrir eir-
pening.
Verða peningarnir seldir á skrifstofu
UMSK Klapparstíg 16, sími 16016, og hjá
aðildarfélögum UMSK, auk þess að hægt
verður að fá peninga senda i póstkröfu.
Áfmælisrit
UMSK
Verið er að vinna að stóru afmælisriti
UMSK í tilefni 50 ára afmælis sambands-
ins. Þetta verður a. m. k. 60 síðna rit,
fjölbreytt að efni.
5KINFAXI
19