Skinfaxi - 01.08.1972, Page 21
Dalamenn við gróðursetningu i Þrastaskógi
fyrir tæpum 50 árum. Fremst eru þeir Guð-
björn Jakobsson og Jóhannes úr Kötlum.
synleg og auðveld í framkvæmd. Vanda-
mál nútímans, barátta, þjáning og gleði
mannsins í nálægð og fjarlægð, eru hon-
um sífellt yrkisefni.
Trúin á æskuna, hlutverk hennar og
mátt, eru rauður þráður í öllum ljóða-
bókum Jóhannesar. Þótt fonnið breytist
hjá hinum framsækna listamanni, er trún-
aðartraustið og andinn á bak við óbreytt.
í ljóðabókinni „Ég læt sem ég sofi“ er
m.a. þetta erindi í kvæðinu „Ég hylli —
ort um 1930:
Ég hylli hiklausa sporið. —
Ég hylli æskuna og vorið,
Því þar er öll von minnar þjökuðu jarðar
og þar er öll framtið míns lands,
ástin, trúin, eldurinn, krafturinn
og — andi sannleikans.
40 árum síðar kom út síðasta ljóða-
bók Jóhannesar, „Ný og nið“. Þar yrkir
hann m. a. um hina ungbornu kynslóð
á þessa leið í kvæðinu „Óðurinn um
oss og böm vor“.
Þvi sérhver ný kynslóð verður að frelsa
heiminn
Með þvi að skapa hann í sinni mynd
Og þarna er hún að koma þarna er
hún að rísa
Einmitt nú og hér er hún að brjótast
Út úr þokum og segulstormum
óskapnaðarins
Finnur sjálfa sig í tóminu
Samtengir angistina kvöl hins striðandi
lýðs
Lyftir ódauðlegum manninum upp úr
viðbjóðinum
Endurfæðist gerir kraftaverk
Breytir helsprengju í lifskjarna
Gefur framtíðinni nýtt mál nýja
menningu
Trúir vonar elskar
Gagntekið heilög ofstæki
Upptendrað af fögrum voða
j arðstj örnunnar
Hugsjóninni
Skirist blóð hennar í hreinsunareldi
morgunsólar
ofar lifi og dauða.
Skinfaxi og allir ungmennafélagar
votta aðstandendum Jóhannesar samúð.
Við höfum séð á bak einörðum baráttu-
manni, þar sem drenglundin hélzt í hend-
ur vil þróttmikla listsköpun. Ungmenna-
félagshreyfingunni er það bæði ómetan-
legur arfur og líka fyrirheit að hafa átt
hann að liðsmanni sínum.
SKINFAXI
21