Skinfaxi - 01.02.1974, Blaðsíða 4
FORSÍÐUMYNDIN
er tekin af kátum krökkum í ungmenna-
búðum UMSK að Varmá s.l. sumar. Mikill
fjöldi barna á þess nú orðið kost að dvelja
í sumarbúðum ungmennafélaganna víðs
vegar um landið, og það er án efa ein-
hver hollasta og ódýrasta sumardvöl, sem
þau eiga völ á. (Ljósm. GSPj.
SEINT Á FERÐ
Þetta hefti Skinfaxa er seint á ferð-
inni, og veldur þar mestu um langvar-
andi verkfall prentara sem skall á þegar
búið var að setja blaðið.
Verður nú reynt að hraða útkomu
næstu hefta til að vinna upp þann tíma
sem tapast hefur. Margs konar efni bíður
næstu hefta Skinfaxa.
FORKEPPNI í KNATTSPYRNU
íyrir landsmót UMPÍ á næsta ári á að
hefjast snemma í sumar. í aprílmánuði
er gert ráð fyrir að dregið verði í riðla.
Fjögur lið munu svo komast í firslita-
keppnina á næsta landsmóti.
ÆSKAN OG LANDBÚNAÐURINN
þessu blaði er skýrt frá norrænni ráð-
stefnu um viðhorf æskunnar til land-
búnaðarstarfa. Ráðstefna þessi var hald-
in hér á landi, og annaðist UMFÍ undir-
búning og framkvæmd hennar. Þetta er
með meiriháttar verkefnum UMFÍ í er-
lendum samskiptum, og tókst það mjög
vel að allra dómi. Ráðstefnuna sóttu 32
erlendir fulltrúar, og rómuðu þeir mjög
skipulagningu og framkvæmd af hálfu
UMFÍ.
Starfshópur á norrænu ráðstefnunni. Full-
trúar frá ýmsum löndum ræða grundvöll
landbúnaðar á Norðurlöndum. I
4
SKINFAXI