Skinfaxi - 01.02.1974, Page 5
Framlag til íþróttasjóðs
hækkað úr 5 millj.
í 44 milljónir króna
Stórefling íþróttasjóðs á síðustu þrem-
ur árum er sennilega mesta gjörbrevting
til batnaðar sem orðið bcfur á öflun
íþróttaaðstöðu hér á landi síðan íþrótta-
lögin gengu í gildi árið 1940. Álirifin eru
þegar farin að koma í ljós og eiga eftir
að sýna sig enn betur á næstu árum.
Á tímabilinu 1960—1971 hafði fram-
lag ríkisins til íþróttasjóðs verið aðeins
2—5 milljónir króna árlega. En 1972 var
framlagið hækkað í 13 milljónir. Árið
1973 var það svo enn hækkað í 25 millj-
ónir og á fjárlögum fyrir 1974 í 44 millj-
onir. Þessi nýja stefna gjörbreytir aðstöð-
unni til íþróttastarfs hér á iandi. Og nú
hefur verið tekið upp fast skipulag um
að styrkur til samþykktra íþróttamann-
virkja verði greiddur að fullu á fjómm
arum, en áður urðu menn að bíða eftir
styrknum í 6—18 ár.
Skuldahali íþróttasjóðs vegna bygg-
ingastyrkja til íþróttamannvirkja var orð-
inn um 83 milljónir króna árið 1971.
i'etta ófremdarástand olli gífurlegum erf-
iðleikum og miklum vonbrigðum. Oftast
i'eyndu menn að taka bráðabirgðalán
meðan beðið var eftir styrknum, og þeg-
ar hann Ioksins kom, höfðu vextir og
verðbólga í rauninni étið hann upp.
Þessari óhugnanlegu skuldabyrði var
létt af árið 1973 með sérstökum aðgerð-
um þannig að hún þyrfti ekki að torvelda
framkvæmdir við íþróttamannvirki í
framtíðinni. Skuldaeigendur gáfu eftir
um 20% af þessari gömlu skuldaeign, en
það sem eftir var — 66,4 milljónir kr. —
skyldi greitt með sérstakri fjárveitingu
ríkisins á fjórum árum, og verður skulda-
bagginn þá að fullu greiddur árið 1976.
Samkvæmt fjárlögunum 1974 hefur
íþiúttanefnd 5 millj. króna til umráða
eingöngu til að byrja á nýjum byggingum
íjnóttamannvirkja og rúmlega 5 millj. kr.
í kennslustyrki til íþrótta- og ungmenna-
félaga og í undirbúningsframkvæmdir
við íþróttamannvirki.
Mikilvæg breyting á íþróttalögunum
Árið 1972 var gerð mikilvæg breyting
á íþróttalögunum, sem hefur verulega
f járhagslega þýðingu varðandi byggingu
íþróttamannvirkja. Kostnaðarhluti í-
jrróttasjóðs í byggingu íþróttamannvirkja
hafði samkvæmt gömlu ákvæðunum ver-
ið óákveðinn, aðeins var tekið fram að
styrkurinn mætti nema allt að ákveðinni
prósentuupphæð. Nú stendur hins vegar
í 9. gr. íþróttalaganna að styrkur íþrótta-
sjóðs til íþróttamannvirkja skuli nema
25—40 af hundraði stofnkostnaðar
íþróttamannvirkis. Styrkur sjóðsins er
skinfaxi
5