Skinfaxi - 01.02.1974, Side 6
misjafn eftir mismunandi gerðum íþrótta-
mannvirkja.
Fram'kvæmdir við ný íþróttamannvirki
má hefja þegar fé hefur verið til þeirra
veitt í fjárlögum og fyrir liggur skriflegt
samþykki íþróttanefndar ríkisins og
menntamálaráðuneytis. Það er einnig
stórfelld breyting til batnaðar að nú hef-
ur verið tekið upp ákveðið skipulag um
að íþróttasjóður greiði sinn liluta af
kostnaðinum að fullu á fjórum árum,
eins og áður segir.
Allt að 50% styrkur
Þá var gerð í maí 1972 breyting á
reglugerð um hlutdeild ríkissjóðs í skóla-
kostnaði (þ. e. breyting á 9. gr. reglu-
gerðar nr. 159/1969). Samkvæmt reglu-
gerðinni er ráðuneytinu nú heimilt að
greiða 50% af normkostnaði viðbótar-
rýmis, annars en áhorfendasvæðis, í
íþróttamannvirkjum skóla, ef sveitarféliig
óska eftir að byggja stærri íþróttahús eða
sundlaugar en gert er ráð fyrir í reglurn
um stofnkostnað skóla.
Einnig er í reglugerðinni annað ákvæði
sem héraðssamböndin ættu að hafa vel
í huga, þar segir: „Þar sem að dómi
ráðuneytisins telst rétt að hafa áhorf-
endasvæði og sérstakt fylgirými vegna
þess, er því einnig heimilt að greiða 50%
af normkostnaði áhorfendasvæðis. Slík
heimild skal þó að jafnaði aðeins notuð
vegna eins íþróttahúss og einnar sund-
laugar innan hvers eðlilegs samgöngu-
svæðis fyrir íþróttakeppni“.
Þorsteinn Einarsson íþróttafulltn’n rík-
isins sem manna mest hefur beitt sér fyrir
þessum endurbótum, sagði í viðtali við
Skinfaxa, að liann túlkaði þetta ákvæði
svo að „eðlilegt samgöngusvæði“ væri
ekki stærra en hvert íþróttahérað. Lág-
mark væri að hafa eitt slíkt stórt íþrótta-
liús með áhorfendasvæðum í hverju í-
þróttahéraði. Þetta álit var einnig sam-
þykkt í ályktunarformi á síðasta sam-
bandsþingi Ungmennafélags íslands.
Þess er að vænta að bæði sveitarstjóm-
ir og forystumenn í íþrótta- og ung-
mennafélagshreyfingunni geri sér grein
fyrir þessari ánægjulegu þróun í fjármál-
um íþróttastarfsins sem orðið hefur á
síðustu árum og geri sér far um að nýta
hana sem best um allt land.
Mörgum hefur fund-
ist að bygging íþrótta-
mannvirkja hafi
gengið seint.
Myndin er tekin af
smíði Laugardalslaug-
arinnar í Reykjavík.
Nú er von til þess að
íþróttamannvirki
komist fyrr í notkun
eftir stóreflingu
íþróttasjóðs.
6
SKINFAXI