Skinfaxi - 01.02.1974, Blaðsíða 13
Tímabært að reisa
héraðsíþróttahús
Valdimar J. Guðmannsson.
— Það hefur verið nohkur lægð á
íþróttasviðinu hjá okkur síðustu árin, en
núna er nýtt fólk að ikoma til sögunnar,
og þetta getur breyst til batnaðar fyrr
en varir, sagði Austur-Húnvetningurinn
Valdimar Jón Guðmannss., er við hittum
hann um miðjan febrúar. Valdimar er
formaður íþróttanefndar USAH, og hann
er ákveðinn þeirrar skoðunar, að ungl-
ingarnir í héraðinu eigi eftir að stór-
efla bæði íþrótta- og félagslífið. Áhuginn
og starfsviljinn væri fyrst og fremst hjá
þeim. íþróttanefndin hefur nú undirbúið
og skipulagt keppni í körfuknattleik og
handbolta milli skólaliða í liéraðinu, en
a veturna eru íþróttaæfingar fyrst og
fremst í skólunum.
Valdimar sagði að brýnasta baráttu-
málið núna væri bygging stórs og vand-
aðs héraðsíþróttahúss, sem gæti verið
miðstöð inniíþrótta og vetraræfinga.
Núna væri tækifærið og rétti tíminn að
hefjast handa eftir að íþróttasjóður hefði
verið efldur. Þess má geta að nokkrir
einstaklingar á Blönduósi og nágrenni
hafa pantað sér lyftingatæki af fullkomn-
inni gerð og ætla að hef ja æfingar í þeirri
grein.
S.l. sumar störfuðu tveir íþróttakenn-
arar á sambandssvæði Ungmennasam-
bands Austur-Húnavatnssýslu, þeir Emil
Björnsson og Karl Lúðvíksson. Emil
kenndi knattspyrnu en Karl frjálsar
íþróttir. Æfingar voru fyrst og fremst í
þorpunum, Blönduósi og Skagaströnd.
Við spurðum Valdimar Jón um félags-
lífið í héraðinu. Hann kvað það stundum
hafa verið líflegra en núna síðustu árin.
Áhugi fyrir félagsstarfsemi væri þó alltaf
fyrir hendi, sérstaklega hjá þeim yngri.
Húnavakan væri árleg félagshátíð fyr-
ir allt héraðið, og ungmennasambandið
ætti heiðurinn af henni. Núna stæði yfir
þriggja kvölda spilakeppni þriðja árið í
röð. Mikil þörf væri á því að halda fé-
lagsmálanámskeið hjá liéraðssamband-
inu. Vonandi yrði það gert, enda mennt-
aður leiðbeinandi í héraðinu, Magnús
Ólafsson fyrrv. form. USAH.
Valdimar kvað það skoðun sína að
endurskoða ætti félagssvæði ungmenna-
félaganna í héraðinu. Aðstæður hefðu
breyst mikið síðan þau voru stofnuð. Það
væri tvímælalaust félagslegur ávinning-
ur að því að sameina sum félögin. Von-
andi kæmi gömul lireppapólitík ekki í
veg fyrir svo sjálfsagða endurskipulagn-
ingu.
SKINFAXI
13