Skinfaxi - 01.02.1974, Síða 16
eru alls konar tognanir og snúnir liðir.
Einfaldast er að vinna gegn þessu með
því að gera öllum, sem æfa, þegar í byrj-
un grein fyrir þýðingu upphitunarinnar,
og síðan að fylgjast með því, að allir hiti
vel upp, og ganga stíft eftir því, að eng-
inn byrji hina eiginlegu æfingu né keppni
nema eftir góða og skipulega upphitun.
Ef tognun á sér þó stað, er best að
kæla það og vefja síðan með bindi —
teygjubindi — vöðvanum eða liðnum til
styrktar. Ekki má vefja of fast. Síðan
verður íþróttamaðurinn að hvílast nokkra
daga, en ef um alvarleg meiðsli er að
ræða verður að fara með þau til læknis
og það sem fyrst.
Það má alls ekki nudda meiðslin eða
setja þau undir hita. Slíkt er talin röng
meðferð á meiðslunum fyrr en í fyrsta
lagi 2 sólarhringum eftir að meiðslin áttu
sér stað, og helst á enginn nema kunn-
áttumaður að framkvæma slíka meðferð.
Næst algengast er að rekja megi til-
drög slyssins til óvarkárni í umgengni á
íþróttavellinum með eða án áhalda. —
Stjórnandinn verður að fylgjast mjög vel
með því að æfingar hinna einstöku greina
séu ekki staðsettar þannig á vellinum að
hætta geti stafað af. Kastarar verða að
liafa mjiig gott svæði fyrir æfingar sínar,
talsvert stærra en besti maðurinn getur
kastað áhaldi sínu lengst, því eftir niður-
komuna rúlla og þeytast áhöldin oft mjög
langt og eru þá lítið hættuminni en á
flugi sínu.
Þá verður leiðbeinandinn og stjórnand-
inn einnig að sjá svo um að aðrir á vell-
inum séu ekki að stytta sér leið vfir kast-
svæðið, því slíkt er að bjóða hættunni
heim, ég tala nú ekki um þegar íþrótta-
fólkið gengur yfir kastsvæðið í áköfum
Margar hættur leynast á íþróttavellinum, og
íþróttatæki eru vandmeSfarin.
samræðum. Hefur slíkt oft leitt til slysa,
þótt oftast hafi þetta slampast af á hinn
furðulegasta hátt, án þess að alvarleg
slys ættu sér stað.
Því er það mjög mikilvægt að alltaf
öðru hverju sé verið að fylgjast með köst-
urunum og að brýna fyrir þeim varkárni
við æfingar sínar. Einkanlega hættir
spjótkösturum oft til að gleyma því, að
spjótið er oddhvasst í báða enda, svo að
fullrar aðgæzlu þarf einnig í næsta ná-
grenni aftan við kastarann.
Komi nú slys fyrir þrátt fyrir alla að-
gætni, er besta ráðið að láta ekki tauga-
16
SKINFAXI