Skinfaxi - 01.02.1974, Side 17
Spjótkastarar gleyma því stundum að spjót-
ið er oddhvasst í báða enda.
veiklun eða „panik“ ná tökum á sér,
heldur haga sér eins og eðlilegt er að
gera í slíkum tilfellum og koma hinum
slasaða fijótt undir læknishendur.
Eftir meiðsli getur orðið um langt æf-
ingatap að ræða, meðan lækning á sér
stað. Þetta er oft hægt að stytta, með því
að hefja létt skokk eins fljótt á eftir og
hægt er. Blóðstreymi til hinna sköðuðu
hkamshluta eykst og lækningin auðveld-
ast og verður hraðari.
Enn eitt atriði langar mig að ræða, en
það er klæðnaður íþróttafólksins. Því
miður á það sér oft stað, að verið er í
allt of þunnum fötum við æfingar, eða
skóm, sem alls ekki eiga við, hvorki æf-
inguna eða árstímann, þegar verið er að
asfa. Það er oft sagt að fötin og skórnir
kosti alltof mikið. Jú, vissulega er þetta
allt orðið ótrúlega dýrt, en er ekki rétt-
ara að kosta örlitlu meira til, kaupa rétt-
an og nægan fatnað, og geta þess vegna
notið æfinga sinna án þess að eiga á
hættu meiðsli og ótalin óþægindi þeirra
Vegna.
Þegar æft er á hörðu er nauðsynlegt að
eiga skó með þvkkum sólum, sem deyfa
vel höggið þegar hællinn kemur niður,
en þau högg eru talin vera veigamesta
Varnaðarorð
orsökin til hinna tíðu beinhimnubólgu,
sem hrjáir íþróttamenn okkar og konur.
Eg ætla svo að ljúka þessum orðum
með því að setja hér fram áskoranir til
allra leiðbeinenda og stjórnenda íþrótta-
æfinga:
Stjórnandi æfingar skal sjá um að:
1. Æfingasvæðið sé hættulaust til æf-
inga, eða merkja mjög vel þá staði
þess, þar sem sérstakrar aðgætni er
þörf, eða loka hluta svæðisins.
2. Kenna öllum æfendum sínum örvgg-
isreglur íþróttarinnar.
3. Ganga ríkt eftir að upphitun, góð og
skipuleg, eigi sér stað í byrjun æf-
ingatímans.
4. Raða æfendunum þannig um svæðið,
að einum stafi ekki hætta af öðrum.
5. Kynna sér vel alla meðferð á meiðsl-
um, og hvar sé læknis að leita.
6. Að kenna æfendunum að taka tillit
hver til annars.
G. Þór.
SKINFAXI
17