Skinfaxi - 01.02.1974, Blaðsíða 26
Frá starfi HSÞ 1973
Mikil starfsemi hefur farið fram á vegum
Héraðssambands Suður-Þingeyinga á þessu
ári.
Keppnistímabil frjálsíþróttafólksins hófst
með innanhússmóti að Laugum 5. maí, og
voru þátttakendur frá 6 félögum.
Héraðsmót í karla- og kvennaflokki fór
fram 7. og 8. júlí. Þátttakendur voru 51 frá
7 félögum. Plest stig félaga hlaut íf. Völs-
ungur á Húsavík, 70 stig. Stigahæstu ein-
staklingar voru Jón Benónýsson, Völsungi
og Bergþóra Benónýsdóttir frá Eflingu í
Reykjadal.
Héraðsmót í flokkum meyja, stúlkna,
sveina og drengja var haldið 11. og 12. ágúst.
Þátttakendur voru 49 frá 5 félögum. íf. Ei-
lífur i Mývatnssveit hlaut flest stig, 278,
næstir voru Völsungar með 198 stig. Stiga-
hæstu einstaklingum á þessu móti voru
veittir fagrir bikarar til eignar, en þeir
voru: í meyjaflokki Ragna Erlingsdóttir frá
Bjarma í Fnjóskadal, í stúlknaflokki Sólveig
Jónsdóttir, Eilífi, í sveinaflokki Steinar
Tómasson, Eflingu og í drengjaflokki Gunn-
ar Bóasson, Eilífi. Einnig er þess að geta,
að Bergþóra Benónýsdóttir hlaut bikar til
eignar fyrir besta ástundun æfinga.
Bikarkeppni unglinga á aldrinum 10 til
15 ára fór fram 26. ágúst. Þátttakendur voru
67 frá 7 félögum. Flest stig hlaut íf. Völs-
ungur, 45,5, í öðru sæti varð umf. Bjarmi
með 42 stig. Öll þessi mót fóru fram á
Laugum.
Keppnisferðir frjálsíþróttafólks út úr hér-
aðinu voru nokkrar. Má þar nefna þátt-
töku HSÞ í 2. deild Bikarkeppni FRÍ á Akur-
eyri, en þar sigraði lið HSÞ og ávann sér
rétt til keppni í 1. deild. í þeirri keppni, sem
fram fór í Reykjavík, mætti HSÞ liðum 5
félaga og ungmennasambanda. Enda þótt
HSÞ hafnaði þar í neðsta sæti, eftir tvisýna
keppni, má segja að hið unga lið sambands-
ins hafi staðið sig vel.
Á Norðurlandsmóti, sem haldið var á
Sauðárkróki 2. og 3. sept. sigraði HSÞ þriðja
árið í röð og vann þar með til eignar fagra
styttu, sem keppt var um. Á Boðsmóti FRÍ
átti HSÞ rétt á að senda 8 keppendur. 5
þeirra mættu til keppni og stóðu sig með
ágætum. Árleg keppni milli HSÞ og UMSE
fór fram að Laugalandi í Eyjafirði um miðj-
an sept. UMSE sigraði, en nokkur forföll
voru í liði HSÞ.
Þátttaka í frjálsiþróttamótum sambands-
ins hefur verið meiri í sumar en undanfarin
ár, sérstaklega var hin mikla þátttaka i
bikarkeppni unglinga ánægjuleg.
Knattspyrnumót sumarsins voru viða-
meiri en nokkru sinni fyrr. í héraðsmóti var
keppt í tveim aldursflokkum, 16 ára og eldri
og 15 ára og yngri. í eldri flokki var leikin
tvöföld umferð. Þar sigraði Völsungur, hlaut
16 stig. í næstu sætum voru Magni frá
Grenivík með 12 stig og Efling með 8 stig.
Keppt var um bikar, sem Kísiliðjan hf. gaf
á síðasta ári, en þá vann Magni mótið. í
yngri flokknum var leikin einföld umferð
og sigraði Völsungur einng þar, hlaut 10
stig. í næstu sætum voru Efling með 8 stig
og Magni og Eilífur með 6 stig hvort félag-
Keppt var um styttu, er Kaupfélag Sval-
barðseyrar gaf á síðasta ári, en þá sigraði
Efling i þessum flokki.
í bikarkeppni yngra flokks, sem var út-
sláttarkeppni, vann Efling. Keppt var um
styttu, sem Bílstjórafélag Suður-Þingeyjar-
sýslu gaf. Þetta var í fyrsta sinn, sem þessi
keppni fór fram og vann Efling hana eftir
tvo úrslitaleiki við Eilíf.
26
SKINFAXI