Skinfaxi - 01.02.1974, Blaðsíða 28
Starfsemi Völsungs var mikil á knatt-
spyrnusviðinu. Má nefna að meistaraflokkur
félagsins lék í 2. deild íslandsmótsins og tók
þátt í Bikarkeppni KSÍ. Einnig keppti fé-
lagið í íslandsmóti í þriðja, fjórða og
fimmta flokki. Stóð sá síðastnefndi sig mjög
vel og komst í úrslit.
íf. Magni er einnig vel virkt félag á
knattspyrnusviðinu og tók þátt í 3. deild fs-
landsmótsins. Varð félagið í 2. sæti í E-riðli
eftir tvísýna keppni.
Aðstaða til þátttöku í utanhússíþróttum
fer nú óðum batnandi í héraðinu. Á Húsa-
vík er malarvöllur og í undirbúningi er gerð
grasvallar ásamt hlaupabrautum. Að Álfta-
gerði í Mývatnssveit er myndarlegur gras-
völlur í eigu Umf. Mývetnings. Við Ljós-
vetningabúð er grasvöllur í eigu Umf. Gam-
an og alvara. Á Grenivík er grasvöllur í
eigu íf. Magna. Við hina nýju Pnjóskárbrú
er grasvöllur, nýlegur, í eigu Umf. Bjarma.
Bráðlega mun rætast úr aðstöðu í Aðaldal
og við Reykjahlíð, en þar eru ófrágengnir
malarvellir. Við Stórutjarnaskóla í Ljósa-
vatnsskarði verður væntanlega tilbúinn
malarvöllur til notkunar fyrir nemendur
skólans á þessu skólaári. Að lokum má
nefna völl HSÞ að Laugum, sem er í röð
bestu íþróttavalla landsins.
Handknattleikur er eingöngu stundaður á
Húsavík, en Völsungar hafa náð mjög at-
hyglisverðum árangri í þessari íbróttagrein,
svo sem kunnugt er. fslandsmót meistara-
flokks kvenna í útihandknattleik 1973 fór
fram á Húsavík og sá Völsungur um fram-
kvæmd mótsins.
Blak hefur lengi verið stundað í Lauga-
skóla, en sl. vetur fór í fyrsta sinn fram
héraðsmót í þessari íþrótt, og sigraði þar
lið Magna.
Badminton er mikið stundað á vegum
Völsungs og hafa þeir háð bæjarkeppni við
Siglfirðinga um nokkurt skeið. Badminton
er einnig æft hjá Umf. Mývetningi og í
Laugaskóla, en héraðsmót hefur enn ekki
verið haldið í þessari grein.
Glíma var æfð sl. vetur hjá Mývetningi
og i Laugaskóla. Einnig kenndu glímukenn-
arar á vegum sambandsins í nokkrum skól-
um í héraðinu. HSÞ sá um Norðurlandsmót
í glimu í apríl. Keppt var í tveimur flokk-
um. Ingi Yngvason, Mývetningi, sigraði í
flokki fullorðinna og Haukur Valtýsson,
Bjarma, í drengjaflokki. HSÞ sendi kepp-
endur til þátttöku í Íslandsglímunni og
Flokkaglimunni, en þar sigraði Ingi í .
þyngsta flokki og Haukur í drengjaflokki.
Sundkeppni fór fram að venju 17. júní á
Húsavík. Einnig sá HSÞ um framkvæmd
unglingamestaramóts Norðurlands í sundi.
Mótið fór fram á Húsavík og var fram-
kvæmdin að mestu í höndum Völsungs.
Sundaðstaða er fyrir hendi á fjórum stöðum
i héraðinu, en á næstunni munu væntanlega
bætast við fjórir nýir sundstaðir, og þá er
von á meiri þátttöku í þessari íþrótt.
Skíðaíþróttin er mikið stunduð á Húsavík
og hefur skíðafólk Völsungs náð góðum ár-
angri á landsmælikvarða. Skíði eru einnig
stunduð i Mývatnssveit, en litið annars stað-
ar í héraðinu. Áhugi er hjá forráðamönnum
skóla á aukinni skíðakennslu, og er í ráði ;
hjá HSÞ aö beita sér fyrir útvegun á skiða-
kennurum á komandi vetri.
Bridge hefur lengi verið iðkað af aðildar-
félögum HSÞ. Héraðsmót var haldið sl. vet-
ur með nýju sniði. Spilaðar voru þrjár um-
ferðir og báru Völsungar sigur úr býtum,
en Mývetningar urðu í 2. sæti. Árleg bridge-
keppni við UMSE fór fram í Ljósvetninga-
búð og vann HSÞ að þessu sinni.
HSÞ hélt sumarbúðanámskeið á Laugum
í júní, en það hefur verið fastur liður í
starfseminni til margra ára. Námskeiðið
stóð í tvær vikur og voru þátttakendur 36
á aldrinum 12 til 15 ára. Þá rak íf. Eilífur
ungmennabúðir um 8 vikna skeið fyrir 5—11
ára börn og voru þátttakendur 33.
Mikið var unnið að landgræðslu sl. sum-
ar og munu öll sambandsfélögin hafa tekið
þátt í því starfi. Félagsmálanámskeið vai'
haldið hjá íf. Eilifi sl. vor. Þátttakendur
28
SKINFAXI