Skinfaxi - 01.02.1974, Side 30
voru 19, kennari var Arnaldur Bjarnason.
Á komandi vetri verður væntanlega lögð
aukin áhersla á iðkun innanhússíþrótta.
Enkum eru vonir bundnar við að auka
megi þátttöku i blaki og badminton. Að-
staða til iðkunar innanhússíþrótta er slæm
i héraðinu, aðeins tvö íþróttahús, á Húsa-
vík og Laugum, og fullnægir hvorugt kröf-
um nútímans. Að Laugum er nýtt iþrótta-
hús í smíðum, en langt í land að það verði
tekið í notkun. Meðan slíkt ástand varir, er
varla von til mjög aukinna umsvifa varð-
andi innanhússíþróttir. Mikill áhugi virðist
vera á byggingu félagsheimila i héraðinu,
og eru þau þá ekki hönnuð sem íþrótta-
mannvirki. Þykir forráðamönnum HSÞ það
óviðunandi, að ekki skuli reynt að sameina
þarfir íþróttastarfsemi og almenns félags-
lífs í þessum dýru mannvirkjum.
Fjárhagur HSÞ er erfiður, svo sem al-
gengast er hjá aðilum ungmennafélags- og
iþróttahreyfingarinnar. Þó hefur samband-
ið notið stóraukins stuðnings frá sveitarfé-
lögum á þessu ári. Einnig er HSÞ styrkt af
sýslusjóði, svo og Kaupfélagi Þingeyinga,
Kaupfélagi Eyfirðinga og Kaupfélagi Sval-
barðseyrar. Er sambandinu mikil þökk að
þessum stuðningi. Höfuðútgjaldaliður HSÞ
er styrkur til aðildarfélaganna vegna kostn-
aðar við íþróttaþjálfun, sem þau leggja í.
Sambandið hefur haft það fyrir reglu að
reyna að byggja félögin upp á þennan hátt.
Á næsta ári verður HSÞ 60 ára. Mun þá
verða gert átak til enn meiri og myndar-
legri starfsemi i tilefni þessa merkisafmælis.
Nú þegar er hafin fjáröflun í þessu skyni
með happdrætti, sem dregið verður í 28.
desember n.k. Sala miða er hafin, og er
þess vænst að Þingeyingar, svo og aðrir vel-
unnarar HSÞ, bregðist vel við og styrki
sambandið með kaupum á happdrættis-
miðum.
Stjórn HSÞ skipa: Óskar Ágústsson,
Laugum, formaður; Vilhjálmur Pálsson,
Húsavik, varaformaður; Sigurður Jónsson,
Skúli Þorsteinsson
Richard Beck:
Hlutverk
kennarans
Fagurt verk er að fræða,
flytja æskunni sannleiksmál,
göfgast þó er að glæða
gróðurmáttinn í ungri sál.
í júníbyrjun 1971 hélt Samband ís-
lenskra barnakennara hátíðlegt 50 ára
afmæli sitt í Reykjavík. í tilefni þess
sendi höfundur ofanskráða ljóðakveðju
til þáverandi formanns félagsins, S'kúla
Þorsteinssonar námsstjóra. Minnugur
þess, hve mikill og ágætur ungmennafé-
lagi Skúli Þorsteinsson var, telur höfund-
ur fara vel á því, að þessi kveðja til
hans geymist í Skinfaxa.
Skinfaxi þakkar dr. Richard Beck fyrir
þessa góðu sendingu. Þess má geta að
dr. Richard ætlar að heimsækja fóstur-
jörðina í sumar og dvelja á þjóðhátíðinni.
Hann og kona hans eru væntanleg til
landsins snemma í júnímánuði.
Yztafelli, ritari; Arngrímur Geirsson, Álfta-
gerði, gjaldkeri og Indriði Ketilsson, Ytra-
Fjalli, meðstjórnandi. Framkvæmdastjóri er
Arnaldur Bjarnason, Fosshóli.
30
SKINFAXI