Skinfaxi - 01.08.1974, Blaðsíða 13
Það er þroskandi
að dansa
Anna Björnsdóttir
Dagana 25.—28. ágúst efndi U.M.F.Í.,
til leiðbeinendanámslceiðs í þjóðdönsum.
Var námskeiðið haldið að Leirárskóla í
Borgarfirði. Þar mættu til leiks nokkrir
ungmennafélagar víðsvegar að af land-
inu. Tveir úrvalskennarar frá Þjóðdansa-
félagi Reykjavíkur kenndu á námskeið-
inu, þær Sigríður Valgreirsdóttir og
Heíga Þórarinsdóttir.
Námskeið þetta var aðallega haldið
vegna þjóðdansasýningar, sem efnt verð-
ur til á Landsmóti U.M.F.Í. á Akranesi
næsta sumar. Hlutverk okkar, sem nám-
skeiðið sóttum, er að æfa upp danshópa
í heimabvggðum okkar og síðan taka
þessir hópar væntanlega þátt í þjóðdansa-
sýningunni á Landsmótinu.
Námskeiðið var mjög fjölþætt, en aðal-
áherslan lögð á undirbúning fyrrnefndr-
ar sýningar. Fvrsti dagurinn bvrjaði með
kennslu í undirstöðuatriðum í gömlu
dönsunum og jafnframt vora kenndir
hinir ýmsu dansar s. s. polki, vals o. s. frv.
Að því loknu bvrjaði kennsla í dönsum
og tilhögun þjóðdansasýningarinnar. Var
því haldið áfram, það sem eftir var dags-
ins og veitti ekki af, því að margt þarf
að læra og leggja á minnið í sambandi
við svona sýningu, ekki sízt, ef maður
þarf einnig að miðla öðrum af þekkingu
sinni. Um kvöldið kynntu Helga og Sig-
ríður okkur íslenzka búninginn, bæði
eldri og vngri gerðir hans og var það
bæði fróðlegt og skemmtilegt.
Annar dagurinn byrjaði með upprifj-
un á því, sem við höfðum lært daginn
áður. Því næst hófst kennsla í vikivök-
um (eftir Sigríði Valgreirsdóttur), en þeir
verða stór þáttur sýningarinnar á Lands-
mótinu. Hafði ég sérstaklega gaman af
að læra þessa dansa. Einnig fórum við
vfir sýninguna í heild. Seinna um dag-
inn voru okkur kenndir ýmsir bamadans-
ar og síðan fengum við haldgóðar leið-
beiningar um tilhögun á kennslu í dansi.
Þá gafst okkur einnig tækifæri til að
spreyta okkur á danskennslu. Kenndum
við hvert öðra og svo börnum, sem stödd
voru í sumarbúðum á Leirárskóla. Æf-
ingarkennsla fór fram bæði annan og
þriðja dag námskeiðsins.
Þriðja daginn var okkur fyrst kennt
að lesa og læra dans eftir bókum, en það
getur revnzt leikmanni fullerfitt. Fórum
SKINFAXI
13