Skinfaxi - 01.12.1974, Qupperneq 3
| SKINFAXI
Tímarit Ungmennafélags íslands — LXV árgangur — 5.-6. hefti 1974 — Ritstjóri Eysteinn
Þorvaldsson — Út koma 6 hefti á ári hverju.
FÉLAGSMÁLAFRÆÐSLA
í nútímaþjóðfélagi er meiri þörf en nokkru
sinni fyrr að hver einstaklingur geti mótað
hugsanir sínar í ræðu og riti. Eða hvað er
hægt að gera nú án þess að tala við svo og
svo marga á svo og svo mörgum skrifstofum
og fylla þar út eyðublöð svo að tugum skiptir?
Með vaxandi notum af fjölmiðlum í samskipt-
um manna vex þörfin á því að hver og einn
geti orðið þar virkur, svo það verði ekki einka-
réttur örfárra að skrifa í blöð, koma fram í
útvarpi eða sjónvarpi.
Nú væri mál að spyrja. Hafa ekki ung-
mennafélögin séð þörfina á þessari fræðslu
og brugðist rétt við henni?
Jú, en það verður þó að segjast eins og er,
að þegar þjóðin losnaði úr fjötrum erlends
valds og fátæktar gleymdi hún þeirri skyldu
sinni að flytja reynslu og þekkingu sína í fé-
lagsmálum til næstu kynslóðar. Það þótti ekki
lengur fint eða nauðsynlegt að eyða tíma i að
sitja á málfundaæfingum eða strita við að
koma þvi á blað sem aðrir sögðu. Vaxandi
skortur á forustumönum í félögunum kom lika
i Ijós og síðar á hinum daglega vettvangi.
t>etta er ekki sök þess æskufólks er var að
vaxa upp heldur þeirra er töldust uppalendur.
Svo var það fyrir um það bil fjórum árum að
Ú.M.F.Í. hófst handa og reyndi að freista þess
að gera hér átak til úrbóta. Hafist var handa
SKINFAXI
um samningu bréfa er áttu að mynda kennslu-
handbók í félagsfræðslu, sem nefndur var Fé-
lagsmálaskóli U.M.F.Í. Námskeiðum var kom-
ið á fót til að mennta leiðbeinendur, sem svo
áttu að starfa heima i félögunum. Síðar tókst
mikil og góð samvinna við Æskulýðsráð ríkis-
ins um þessi mál og hefur það kostað útgáfu
endurskoðaðrar handbókar um félagsmála-
fræðslu. Með þessu námsefni hafa síðan ver-
ið haldin leiðbeinendanámskeið I flestum
landshlutum. Það er samdóma álit þeirra er
lengst hafa notið þessara námskeiða að ört
vaxandi fjöldi ungmenna komi til starfa í fé-
lögunum. Ekki aðeins til forustustarfa heldur
eru félagarnir fúsari til almennra starfa og
gera sér betur grein fyrir sinni eigin getu og
þörfum á þvi að vera virkur þátttakandi.
Nú vill Skinfaxi fara að upphafsorðum þessa
greinarkorns og hvetja öll héraðssambönd og
ungmennafélög, sem ekki hafa þegar notið
slíkra námskeiða að hefjast handa. U.M.F.Í.
mun veita alla þá fyrirgreiðslu er það getur í
té látið. Látum reynslu annarra ungmennafé-
laga verða okkur hvatning, stöndum saman og
látum þess sjást merki að Félagsmálaskóli
ungmennafélaganna er Félagsmálaskóli þjóð-
arinnar nú eins og hann var.
Bergur Torfason.
3