Skinfaxi - 01.12.1974, Side 8
SÖNGURINN ER OKKAR
TÓNLISTARARFUR
Rætt við Jónas Ingimundarson
Skinfaxi náði stuttu viðtali við Jónas
Ingimundarson í tilefni af útkomu Vasa-
söngbókarinnar, og fer það hér á eftir:
— Hvenær byrjaðir þú að vinna að
bókinni, Jónas?
— Það var víst á þrettándanum í ár
að Hafsteinn Þorvaldsson sagði mér frá
áformum UMFÍ um að gefa Vasasöng-
bókina út. Hann hafði þá undir höndum
tillögur frá ýmsum mönnum um fjöl-
marga texta. Mér leist vel á hugmyndina
um útgáfuna, en ég var frá upphafi
þeirrar skoðunar að gefa ætti bókina út
með nótum.
— Hvers vegna?
— Annars getur hún ekki talist söng-
bók heldur aðeins textasafn. Notagildi
hennar hlýtur að stóraukast við nóturnar,
og það er álit margra þeirra sem við
söngmál fást, að slíka bók hafi lengi
vantað til að efla almennan söng og
söngmennt í landinu. Stjórn UMFI féllst
strax á þetta sjónarmið, og það varð úr
að mér var falið verkið.
— Er það rétt að þú hafir notað lítið
af þeim textum sem búið var að safna?
Ég felli marga þeirra niður sem hafa
h'tið eða ekkert sönggildi, t. d. afdönkuð
dægurlög og ambögur. Hins vegar gáfu
8
nóturnar nýja möguleika til að kynna
ýmislegt nýstárlegt. Ég tók upp marga
texta og lög sem ég vona að henti vel.
Samtals eru í bókinni um 200 sönglög.
Auðvitað verður það alltaf álitamál hvað
á að velja og hverju að hafna. Sjálfsagt
munu sumir sakna einhvers.
Texta og lög valdi ég auðvitað að
vel yfirlögðu ráði og leitaði ráða hjá
mörgum mönnum sem eru hæfari en ég.
Einkum vil ég nefna Þorstein Valdimars-
son sem var mér sérsbaklega ráðhollur.
— Hvað er helst nýstárlegt við bók-
ina?
— Það er flest nýstárlegt við þessa
bók, og ekki síst það sem er gamalt. Ég
valdi í hana talsvert af jrjóðlögum sem
allt of lengi hafa legið í þagnargildi en
nú er vaxandi áhugi fyrir. Mörg ný og
vinsæl sönglög eru líka í bókinni. Nót-
urnar eru auðvitað nýjung í slíkri bók og
gefa henni margfalt gildi umfram |>au
söngtextasöfn sem hér hafa lengi tíðkast.
Síðast en ekki síst má svo benda á
mvndskreytingu bókarinnar sem er nýj-
ung í slíkum bókum hérlendis og hefur
tekist mjög vel.
— Var ekki erfitt að koma þessu öllu
fyrir í lítilli vasabrotsbók?
SKINFAXI