Skinfaxi - 01.12.1974, Page 9
— Nóturnar skrifaði ég á venjulegan
nótnapappír, og textann í nótnalínumar
vélritaði konan mín. Þetta er auðvitað
nákvæmnisverk. Þetta var svo minnkað
í myndamótagerð í samræmi við stærð
bókarinnar og reynist mjög skýrt í prent-
un.
— Telurðu að unga fólkið muni taka
þjóðlögunum vel?
— Já, þau hafa notið vaxandi vinsælda
undanfarið t. d. hjá ýmsum sönghópum
°g jrjóðdönsurum, en hvorki lög né text-
ar hafa verið aðgengileg almenningi.
Okkar „tradition“ í músík er eingöngu
söngur. Fólk söng t. d. undir dansi bæði
sagnadansa og rímur og síðar ýmis viki-
vakakvæði. Þessa erfðavenju okkar í
söng álít ég að við eigum eftir að endur-
lífga og halda við, og við emm svo
heppnir að geta sótt mikinn efnivið í
þjóðlagasafn Bjarna Þorsteinssonar sem
er stórkostlegt brautryðjendaverk í þjóð-
lagasöfnun.
— Hvemig álíturðu að bókin verði
notuð?
— Tilgangur hennar er að efla al-
mennan söng. Hún er eins konar upp-
sláttarbók til notkunar við hvers konar
tækifæri. Hún á að hvetja fólk til að taka
lagið hvar sem það kemur saman. Fyrir
kóra ætti hún líka að geta orðið skemmti-
efni þótt lögin séu ekki útsett margrödd-
uð. Þá má geta þess að tóntegundir eru
valdar þannig í bókina að hægt er að
Jónas Ingimundarson
við flygilinn.
SKINFAXI
9