Skinfaxi - 01.12.1974, Page 11
Ólafur Oddsson:
félagsmAlaskúli
UMFl
BLÓMLEGT STARF
FÉLAGSMÁLASKÓLAN S
26. sambandsþing UMFÍ sem haldið
var að Laugum 1968 samþykkti að koma
á fót félftgsmálaskóla sem hafi það
að markmiði að þjálfa unga menn og
konur til þess að taka að sér félagslega
uppbyggingu meðal æskufólks í landinu.
1. febrúar 1970 samþykkti stjóm UMFÍ
reglugerð fyrir skólann en hún hefur ekki
verið endanlega afgreidd af sambands-
þingi UMFÍ. En engu að síður hefur
skólinn aldrei verið sterkari en einmitt
í dag.
Frá námskeiði Félagsmálaskóians sem hald-
iS var í Kópavogi í tengsium við Tómstunda-
ráð Kópavogs.
SKINFAXI
Námsefni.
Eitt af megin markmiði Æskulíðsráðs
ríkisins hefur verið frá upphafi útgáfa
á félagsmálanámsefni sem gefið var út
í lausablaðabroti og kallað „Félagsmála
námskeið I”
Við uppbyggingu þess námsefnis var
stuðst við efni Félftgsmálaskóla UMFÍ og
átti UMFÍ stóran þátt í samningu þess.
Nú hefur Æskulýðsráð gert uppkast að
framhaldsnámsefni sem er „Félagsmála-
námskeið II“, og fjölritað nokkur eintök
til reynslu.
HSÞ, UMSK og HSK hafa tekið það að
sér að halda framhaldsnámskeið með því
námsefni, en þetta eru þau héraðssam-
bönd sem komin eru lengst í félagsmála-
fræðslunni.
UMFÍ hefur tekið það að sér að vinna
upp efni fyrir yngri aldursflokka eða
12—14 ára aldurinn sem hugsanlega
væri hægt að nota í bama- og unglinga-
skólum. (Vikið er að því síðar í grein-
inni).
F élagsmálakennaramir.
Æskulýðsráð ríkisins hefur staðið fyrir
námskeiðum fyrir félagsmálakennara
víðsvegar um landið og hafa rúmlega 50
kennarar útskrifast af þeim frá ung-
mennafélögunum. Allir leiðbeinendumir
á þeim námskeiðum hafa verið úr röðum
11