Skinfaxi - 01.12.1974, Blaðsíða 13
UMFÍ að æskulýðsfulltrúa rílcisins und-
anskildum, Reyni G. Karlssyni.
Starfandi félagsmálakennarar eru enn
þá of fáir innan hreyfingarinnar, en mik-
ið hefur þó áunnist í þeim efnum, þvi
haldin hafa verið námskeið í öllum lands-
hlutum að undanskildu Norðausturlandi,
Snæfellsnesi og Dölum. Fullvist má
telja að kennaranámskeiðin hafi verið of
stutt, því að minnsta kosti hafa fáir farið
út í fræðslu miðað við fjölda útskrifaðra
kennara.
Þar sem vetrarsamgöngur eru erfiðar,
virðist vera mjög mikil þörf á að til
staðar séu hæfir félagsmálakennarar sem
dreifðast í héruðum og gildir þetta sér-
staklega um Ýestfirði og Austfirði. Alltítt
er að heimamenn treysti sér ekki til að
hefja fræðslu í héraðinu þó að þeir e.t.v.
treysti sér til að byrja annars staðar og
eru til mörg dæmi þess að skipst hafi
verið á hlutverkum.
Sú reynsla sem reyndustu félagsmála-
kennarar hreyfingarinnar hafa öðlast sl.
3 ár er mjög dýrmæt og full ástæða til
að staldra við og endurskipuleggja
fræðslustarfsemi félagsmálaskólans. Þar
sem kennsluefni og aðferðir voru upp-
haflega settar án mikillar reynslu og ann-
að hitt, að fræðsluþörf er mjög staðbund-
in og ])ví um margvíslegar kennsluað-
ferðir að ræða.
Námskeiðin.
Nú hafa verið lialdin á milli 30 og 40
námskeið vítt og breitt um landið og hafa
rúmlega 600 manns sótt þau. Námskeiðin
hafa verið haldin af héraðssamböndum
í samráði við ungmennafélögin, eða
kvenfélögin, tómstundaráð, skóla o. fl.
aðila og eða þeim boðin þátttaka. Sums
staðar á landinu hæfir best að halda nám-
skeiðin í beinum tengslum við skólana og
þykir annað ekki koma til greina, þó ann-
ars staðar megi ekki minnast á það. Á
kennaranámskeiðum ÆRR hafa alls 64
skólakennarar og 15 skólastjórar setið,
og hefur það efalaust orðið til þess
að skapa aukinn skilning forráðamanna
Hópur unglinga úr
skólunum í Garðahreppi
sem luku námi I. stigs
í félagsmálafræðslu.
SKINFAXI
13