Skinfaxi - 01.12.1974, Side 20
Forsíffan á
30 ára afmælis-
riti UMFÍ
frjálsu íþróttahreyfingar hafa oft átt
erfitt uppdráttar vegna kostnaðar sem
ólijákvæmilegur er þrátt fyrir fómfúst
félagsstarf þjálfara og annarra. Félögin
hafa alltaf reynt að stilla æfingagjöldum
í hóf, og hefur mörgum unglingnum
samt reynst örðugt að standa í skilum
með gjöld sín.
En nú eru að rísa hér á landi einka-
fyrirtæki sem m. a. auglýsa líkamsæfingar
til heilsuræktar og heilsubótar. Hjá þess-
um fyrirtækjum eru æfingagjöld marg-
föld á við gjöldin hjá íþróttafélögunum
enda allt annað sjónarmið sem liggur að
baki þessari starfsemi en hjá íþrótta- og
ungmennafélögunum. Þeim mun ein-
kennilegra er að sjá auglýsingar þar sem
þekktur afreksmaður í íþróttum (sem auk
þess er menntaður íþróttakennari) og
verkalýðsfrömuður Ijá myndir sínar til
fjáröflunar slíkra fyrirtækja. Þetta fyrir-
brigði er alþekkt erlendis. Reynt er að
telja fólki trú um hægt sé að stunda í-
þróttir og auka hreysti sína með einhvers
konar „patent“-æfingum sem séu ekki
aðeins lausar við allt erfiði heldur líka
beinlínis þægilegar meðan á þeim stend-
ur. Fyrir þessa patentlausn er fólk látið
borga stórfé og þetta virðist takast hér
20
á landi líka. En það er óviðkunnanlegt í
hæsta máta fyrir íþróttirnar og verka-
lýðshreyfinguna að sjá virðulega fulltrúa
sína flatmagandi á fjármögnunarauglýs-
ingum slíkra fyrirtækja.
Óskráð saga
Þegar maður les hið myndarlega rit
Bjarna V. Guðjónssonar, Með vorblæn-
um, kemur manni í hug hversu geysi-
mikið verk er óunnið í söguskráningu og
sögukönnun ungmennafélagshreyfingar-
innar í heild. Saga Umf. Bjamar Hítdæla-
kappa er vel skrifuð og greinargóð heim-
ild um félagslíf og menningarviðleitni í
litlu sveitarfélagi. Til em drög að sögu
sumra héraðssambandanna. A 30 ára af-
mæli UMFI var gefið út vandað minn-
ingarrit UMFÍ eftir Geir Jónasson. Þetta
er gagnmerkt rit um margt, ekki síst
vegna þess að þar er saga og þróun ung-
mennafélaganna rakin í þjóðfélagslegu
samhengi. Þetta rit er nú ófáanlegt, og
síðan það var skrifað em liðin 38 ár.
Ekki hefði verið vanþörf á að gefa slíkt
rit út á 30 ára fresti. Fmmherjamir frá
fyrstu dögum hreyfingarinnar em nú
flestir fallnir í valinn, og stöðugt hverfa
menn með mikla starfssögu að baki úr
röðum okkar. Sögulegar heimildir em í
lífi og sál margra þessara manna og
hverfa að eilífu með þeim. Það er ekki
seinna vænna að fara að festa á bók
sögu þeirra ungmennafélaga sem vom í
eldlínunni þegar 30 ára minningarritið
kom út.
Ef mig misminnir ekki, var einhvem
tíma frá því greint á vettvangi UMFÍ að
sérstök nefnd ynni að þessu máli. Von-
andi er hún að sinna þessu verkefni í
fullri alvöru þó að hljótt fari.
eyþ.
SKINFAXI
HINNINGARRIT