Skinfaxi - 01.12.1974, Page 31
LANDSMÓTSKYNNIN G
UM ALLT LAND
Landsmótsnefnd UMFÍ áfonnar víð-
tæka kynningu á framkvæmd 15. lands-
móts UMFÍ og fyrirhuguðum hópsýning-
um í fimleikum og þjóðdönsum.
Dagana 18. og 19. janúar n.k. boðaf
landsmótsnefnd til funda í þessu skyni
á eftirtöldum stöðum:
1. Egilsstaðir: UÍA — Úlfljótur (xl) 15.
janúar kl. 16.
2. Akureyri: HSÞ - UNÞ - UMSE -
UMSS. (x2) 15. janúar kl. 13.
3. Reykjaskóli, Hrútaf.: USAH - USVH
- HSS. 16. janúar kl. 13.
4. Núpur: HVÍ - Umf. Bolungarvíkur -
Hrafna-Flóki. 15. jan. kl. 14.
5. Borgames: HSH - USD - UMSB -
Umf. Skipaskagi, Ak. 15. jan. kl. 13.
6. Hvolsvöllur: HSK - USVS. 15. janúar
kl. 13.
7. Njarðvik: UMSK - Umf. Keflavíkur -
Umf. Njarðvíkur - Umf. Grindavíkur
- 16. janúar kl. 13.
Á þessum fundum verða fulltrúar frá
stjóm UMFÍ og landsmótsnefnd ásamt
leiðbeinendum í fimleikum. Þar fer fram
kynning á helstu framkvæmdaþáttum
landsmótsins, og hópsýningarprógrömm
í fimleikum verða kynnt og yfirfarin með
væntanlegum leiðbeinendum heimaaðila.
SKINFAXI
Fimleikar:
Tekist hefur samstarf við Fimleika-
samband íslands sem lætur nú 100 í-
þróttakennara vinna að gerð sýningar-
prógramms.
Kennd verða 4 sýningarprógrömm
a) fyrir konur 15 ára og eldri
b) fyrir karla 15 ára og eldri
c) fyrir stúlkur 14 ára og yngri
d) fyrir drengi 14 ára og yngri
Tónlist verður fáanleg við öll pró-
grömmin. Þau verða auðveld og með
þeim fylgja útskýringar og myndir.
Þjóðdansar:
Fyrir forgöngu UMFÍ og í góðri sam-
vinnu við Þjóðdansafélag Reykjavíkur
var í sumar samið sýningarprógramm í
þjóðdönsum, fyrir landsmótið. Sýningar-
prógramm þetta ásamt tónlist verður nú
tilbúið innan tíðar. Tekist hefur samstarf
við Þjóðdansafélag Reykjavíkur um út-
vegun leiðbeinenda en um þessar mundir
eru 28 leiðbeinendur að Ijúka námskeiði
hjá félaginu.
Á áðurnefndum kynningarfundum
verður athugað um áhuga á þátttöku í
þjóðdansasýningum. Landsmótsnefnd
æskir þess að hafa mikið og gott sam-
31