Skinfaxi - 01.12.1974, Blaðsíða 33
starf við alla sambandsaðila UMFÍ og
væntir þess að nú þegar verði þessi áform
nefndarinnar og önnur sem berast kunna,
kynnt félagsmönnum jafnharðan.
Landsmótsnefnd og stjórn UMFÍ hvet-
ur félögin til þess að nota þetta sérstaka
tækifæri til þess að koma upp hjá sér
góðum sýningarflokkum til þátttöku í
hópsýningum landsmótsins, sem og við
önnur tækifæri, t. d. 17. júní.
Landsmótsnefnd gerir ráð fyrir því að
haft verði gott samstarf við skóla á við-
komandi sambandssvæðum, sem og við
alla starfandi íþróttakennara og heitir á
viðkomandi aðila að leggja félögunum lið
í þessari viðamiklu framkvæmd.
Takist okkur að hrinda þessu í fram-
kvæmd samkvæmt framansögðu, áforma
framkvæmdaaðilar aðra yfirferð til leið-
sagnar og kynningar síðar í vetur.
Landsmótsnefnd hvetur alla sambands-
aðila UMFÍ til öflugs undirbúnings með
þátttöku í landsmótinu í huga.
Bréfaskipti
Tólf ára gamall norskur strákur sem
stundar starfsíþróttir (4H) óskar að
skrifast á við jafnaldra sinn hér á landi,
og er þess eindregið óskað að bréfavin-
urinn sé frímerkjasafnari. Sá norski get-
ur skrifað á norsku eða ensku. Nafn
hans og heimilisfang er:
Knut Arne Nygárd
4670 Hornnes
Norge
SKINFAXI
13 ÁRA KASTAÐI
KRINGLUNNI 54,48 M.
13 ára gamall piltur, Vésteinn Haf-
steinsson Umf. Selfoss, setti nýtt íslands-
met í kringlukasti pilta (1 kg. kringla)
í sumar og kastaði 54,48 m. Vésteinn bætti
metið alls fimm sinnum i sumar, en
gamla metið var 43,34 m., og það setti
bróðir hans, Þráinn Hafsteinsson, árið
1971. Vésteinn bætti met bróður síns um
hvorki meira né minna en 10,74 m. i
sumar. Næsta ár verður hann enn i pilta-
flokki, og verður fróðlegt að fylgjast með
framförum hans.
Þá setti Vésteinn einnig piltamet í
spjótkasti (600 gr. spjóti), en hann kast-
aði 44,02 metra á fimmtarþrautarmóti
HSK. Gamla metið var 41,44 m., sett af
Óskari Jakobssyni árið 1969. Vésteinn
setti því alls 6 íslandsmet á árinu í pilta-
flokki.
Fleiri árangrar Vésteins sýna að hér er
óvenjulegt efni á ferðinni. Drengj akringl-
unni (1,5 kg.) hefur hann kastað 34,94 m.,
sveinakúlunni (3 kg.) hefur hann varpað
15,27 m. og drengjakúlunni (4 kg.) hefur
hann varpað 12,70 m.
Vésteinn Hafsteinsson með kringluna.
33