Skinfaxi - 01.12.1974, Qupperneq 37
Hluti fundarmanna
við þingstörf á sam-
bandsráðsfundinum í
Grindavík.
sögu staðarins og bauð fundarmönnum
að skoða félags- og íþróttaaðstöðu bæj-
arins eftir hádegisverð. Einnig voru skoð-
uð hafnarmannvirki en síðan lýsti bæj-
arstjóri uppbyggingu þeirra.
Ræddar voru tillögur milliþinganefnd-
ar UMFI sem að mestu fjölluðu um
skipulagsmál.
UMFÍ rekur sem kunnugt er skrifstofu
og þjónustumiðstöð fyrir félögin í
Reykjavík og urðu allmiklar umræður
um hana og voru menn á eitt sáttir um
að hún hefði miklu hlutverki að gegna
og væri ómetanleg aðstoð við hin dreifðu
félög sem óhjákvæmilega jrurfa að leita
eftir margs konar fyrirgreiðslu til Reykja-
víkur. Má þar helst nefna skipulagn-
ingu og aðstoð við félagsmálafræðslu,
fjölritun og aðstoð við útgáfustarfsemi
félaganna, aðstoð við ráðningu starfs-
manna og þjálfara, við erlend samskipti,
i, við innkaup allskonar, aðstoð við þing,
ráðstefnur og mótshald, fyrirgreiðslu við
hópa sem koma til Rvk. o. fl.
Gunnar Sveinsson reifaði j)á hugmynd
að stofna klúbba innan vébanda UMFÍ
þar sem rædd væru ýmis framfaramál
Gunnar lagði fram hugmynd um stofnun
og starfsreglur fyrir klúbbana. Lögð
var áhersla á að málið yrði vel undir-
biiið og var í því sambandi kosin nefnd
þriggja manna sem eru þeir: Garðar
Óskarsson, Guðmundur Snorrason og
Valdimar Óskarsson og var Valdimar
kosinn formaður nefndarinnar.
Sæmdir starfsmerki
A fundinum vom fjórir ungmennafé-
lagar sæmdir starfsmerki UMFÍ, en það
voru þeir Guðmundur Snorrason, Umf.
Njarðvíkur; Þórhallur Guðjónsson, Umf.
Keflavíkur; Jóhannes Haraldsson, Urqf.
Grindavíkur og Símon Rafnsson, Umf.
Þrótti, Vatnsleysuströnd.
Þessum mönnum voru færðar sérstak-
ar þakkir fyrir störf sín að málum hreyf-
ingarinnar í heild en sérstaklega fyrir
störf á sínum heimaslóðum.
Ungmennafélag Grindavíkur sá um
undirbúning fundarins af hálfu heima-
37
SKINFAXI